Völsungur krækti í kanadískan markvörð sem gæti hjálpað liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Sú heitir Laurence Gladu og er 23 ára gömul. Hún lék síðast með Calgary Wild FC í efstu deild kanadíska boltans og vonast Húsvíkingar til að hún reynist vænlegur liðsstyrkur.
Laurence er væntanleg til Húsavíkur um miðjan apríl og ætti því að ná öllu sumrinu með Völsungi.
Völsungur lék í 2. deild í fyrra og komst upp þrátt fyrir að enda í þriðja sæti.
Athugasemdir


