Fotbolti.net
31.03.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fer frá Bayern í sumar (Staðfest)

Fer frá Bayern í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Bayern

Hinn 32 ára gamli Raphael Guerreiro mun yfirgefa herbúðir Bayern Munchen þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Guerreiro gekk til liðs við Bayern frá Dortmund árið 2023 en hann spilaði 224 leiki fyrir Dortmund og hefur spilað 89 leiki fyrir Bayern. Hann hefur komið við sögu í 23 leikjum á þessu tímabili.

Guerreiro er portúgalskur bakvörður en hann hefur spilað 65 landsleiki og skorað fjögur mörk.

Hann vann þýsku deildina með Bayern á síðustu leiktíð en liðið er á góðri leið með að tryggja sér titilinn aftur í ár. Þá er liðið enn í Meistaradeildinni.

Hann hefur verið orðaður við Benfica en hann hefur aldrei spilað í Portúgal þar sem hann er uppalinn í Frakklandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.