Fotbolti.net
27.03.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Elvis frá Eyjum til Aberdeen (Staðfest)

Elvis frá Eyjum til Aberdeen (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamaðurinn Elvis Bwomono er aftur farinn til Skotlands og hefur skrifað undir samning við Aberdeen sem gildir út tímabilið.

Elvis var með lausan samning eftir síðasta tímabil og mátti því semja við Aberdeen utan félagaskiptaglugga. Hann þekkir til í Skotlandi því hann lék með St. Mirren 2023-25.

Hjá Aberdeen hittir Elvis fyrir Kjartan Má Kjartansson sem gekk í raðir skoska félagsins frá Stjörnunni síðasta sumar.
Elvis er fjölhæfur leikmaður sem fæddur er árið 1998. Hann kom fyrst til Íslands og lék með ÍBV 2022-23. Hann sneri svo aftur í sumarglugganum í fyrra.

Hann er fæddur í Úganda, á 14 A-landsleiki en er uppalinn hjá QPR og Southend.

Aberdeen situr í 9. sæti skosku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti sem stendur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.