Fotbolti.net
28.03.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Gabríel og Oliver stýra Augnabliki í sumar (Staðfest)

Gabríel og Oliver stýra Augnabliki í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gabríel Þór Stefánsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Augnabliks í 3. deild eftir að hafa leikið fyrir félagið og unnið sér inn góðan orðstír við þjálfun í yngri flokkum Breiðabliks.
Oliver Sigurjónsson, sem er goðsögn hjá Blikum eftir langan og glæsilegan feril hjá félaginu, verður honum til aðstoðar.

„Er með þessu þjálfarateymi stefnt að því að efla enn frekar samstarf Augnabliks og Breiðabliks með flæði efnilegra leikmanna á 2. flokks aldri á milli félaganna með það að markmiði að gefa þeim reynslu í meistaraflokksfótbolta til að undirbúa þá betur undir skrefið upp í meistaraflokk Breiðabliks," segir meðal annars í tilkynningu frá Augnabliki á samfélagsmiðlum.

Augnablik leikur í 3. deild eftir að hafa rétt mistekist að koma sér upp um deild í fyrra. Væntingarnar eru því miklar í Kópavogi.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.