Fotbolti.net
31.03.26 - 16:42
Kári Snorrason

De Zerbi tekur við Tottenham (Staðfest) - Fimm ára samningur

De Zerbi tekur við Tottenham (Staðfest) - Fimm ára samningur
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi hefur verið tilkynntur sem nýr stjóri Tottenham. Hann skrifar undir fimm ára samning við Lundúnaliðið.

Tottenham lét króatíska stjórann Igor Tudor taka poka sinn í vikunni eftir að hafa verið aðeins 44 daga í starfi. Þar áður hafði Thomas Frank stýrt liðinu.
Tottenham er í mikilli fallhættu, stigi fyrir ofan West Ham sem situr í fallsæti. Liðið hefur ekki unnið í síðustu 13 leikjum í úrvalsdeildinni og er eina lið deildarinnar sem er án sigurs á árinu.

De Zerbi var síðast stjóri Marseille í Frakklandi en hann sagði upp störfum þar í febrúar. Þar áður hafði hann stýrt Brighton við góðan orðstír.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.