Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alekss og Maríus sendir til Augnabliks (Staðfest)
Mynd: Breiðablik
Augnablik er búið að staðfesta tvö félagaskipti til sín frá Breiðabliki þar sem Alekss Kotlevs og Maríus Warén munu leika með liðinu í 3. deildinni í vetur.

Blikar telja unglingalandsliðsmennina Kotlevs og Maríus þurfa á spiltíma að halda enda eru þeir báðir bráðefnilegir.

Kotlevs er 18 ára varnarmaður sem er með tvöfalt ríkisfang og hefur bæði leikið fyrir unglingalandslið Íslands og Lettlands.

Maríus, sem er einni viku yngri heldur en Kotlevs, er með leiki að baki fyrir U18 landslið Íslands og hefur verið í æfingahópum U19 landsliðsins síðustu mánuði.

Hann hefur verið að spila með meistaraflokki Blika á undirbúningstímabilinu og þykir gríðarlegt efni.

„Við bindum miklar vonir til Maríusar og getum ekki beðið eftir að sjá hann vaxa og dafna í Augnablikstreyjunni í sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá Augnabliki.



Slapp
Athugasemdir
banner
banner