Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24421 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.05.2024, 12:00

Xavi rekinn frá Barcelona (Staðfest)

Barcelona hefur gefið út yfirlýsingu þar sem er staðfest að félagið sé búið að reka Xavi úr starfi þjálfara liðsins. Það á eftir að staðfesta það, en það er nokkuð ljóst að Hansi Flick, fyrrum stjóri Bayern München og þýska landsliðsins, mun taka við Katalóníustórveldinu.

FRÉTTIR24.05.2024, 08:35

Pioli látinn fara frá AC Milan (Staðfest)

AC Milan hefur staðfest að Stefano Pioli hafi verið látinn fara eftir að hafa verið stjóri liðsins í fimm ár. Honum er þakkað fyrir störf sín. Þessar fréttir koma ekkert á óvart enda sögðu ítalskir fjölmiðlar frá því að Paulo Fonseca, stjóri franska liðsins Lille, hefði gert munnlegt samkomulag við Milan um að taka við stjórnartaumunum.

FRÉTTIR24.05.2024, 06:00

Carson framlengir við Man City (Staðfest)

<p>Hinn 38 ára gamli Scott Carson, markvörður Manchester City hefur framlengt samning sinn við félagið um mun taka slaginn með liðinu á næstu leiktíð.</p>

FRÉTTIR23.05.2024, 10:13

Lopetegui nýr stjóri West Ham (Staðfest)

Spánverjinn Julen Lopetegui er nýr stjóri West Ham og tekur við starfinu af David Moyes. Lopetegui náði samkomulagi við forráðamenn Hamranna fyrr í þessum mánuði og hefur nú skrifað undir samninginn. Hann segist taka við góðu búi af Moyes. <i>„Ég er verulega ánægður og við höfum mikinn metnað. Það var frábær dagur þegar við náðum samkomulagi. Ég og mitt teymi vorum með aðra valkosti en ég er stoltur af því að West Ham valdi mig. Við viljum hafa mikil áhrif,"</i> segir Lopetegui. Þessi fyrrum stjóri Real Madrid og fyrrum landsliðsþjálfari Spánar stýrði síðast Wolves en lét af störfum rétt fyrir tímabilið þar sem hann taldi forráðamenn félagsins ekki hafa staðið við gefin loforð á leikmannamarkaðnum.

FRÉTTIR22.05.2024, 10:00

Jón Daði kveður Bolton (Staðfest)

Jón Daði Böðvarsson mun í sumar yfirgefa Bolton þegar samningur hans við félagið rennur út. Frá þessu greinir hann á samfélagsmiðlum í morgunsárið.

FRÉTTIR22.05.2024, 09:11

Davíð Snorri nýr aðstoðarþjálfari landsliðsins (Staðfest)

Davíð Snorri Jónasson hefur tekið við stöðu aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands og verður því Aga Hareide til aðstoðar. Hann tekur við af Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem lét af störfum á dögunum til að taka við AB í Danmörku. Davíð hefur verið U21 landsliðsþjálfari en í tilkynningu frá KSÍ kemur fram að leit sé þegar hafin að nýjum þjálfara fyrir U21.

FRÉTTIR21.05.2024, 18:21

Pochettino látinn fara frá Chelsea (Staðfest)

Argentínski stjórinn Mauricio Pochettino og enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem stjóri félagsins. Chelsea tilkynnti þetta í kvöld.

FRÉTTIR21.05.2024, 12:29

Sara Björk yfirgefur Juventus (Staðfest)

Sara Björk Gunnarsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Juventus, félagið kvaddi hana á samfélagsmiðlum sínum í dag. Samningur hennar við ítalska félagið er að renna út og er óvíst hvað Sara gerir næst á sínum ferli. Hún kom til Juventus frá Lyon árið 2022. Síðasti leikur Söru fyrir Juventus var gegn Roma fyrir rúmri viku síðan en hún var ónotaður varamaður í lokaumferðinni gegn Sassuolo. Juventus endaði í 2. sæti deildarinnar í ár, ellefu stigum á eftir Roma. Roma, juventus og Fiorentina fara öll í Meistaradeildina.

FRÉTTIR20.05.2024, 21:02

Dagný áfram hjá West Ham (Staðfest)

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur framlengt samning sinn við West Ham United um eitt ár en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.

FRÉTTIR17.05.2024, 15:50

Arne Slot tekur við Liverpool (Staðfest)

Hollendingurinn Arne Slot hefur staðfest að hann verði stjóri Liverpool á næsta tímabili. Hann skrifaði í dag undir samning hjá enska félaginu. Hann stígur í þau stóru fótspor að taka við liðinu af Jurgen Klopp. Sá þýski hefur stýrt Liverpool við frábæran orðstír frá því í október 2015 en hann kveður núna um helgina.

FRÉTTIR17.05.2024, 12:27

Hólmar Örn framlengir við Val út 2026 (Staðfest)

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2026. Fyrri samningur átti að renna út eftir tímabilið. Hólmar er á sínu þriðja tímabili með Val, hann sneri heim til Íslands eftir þrettán ár í atvinnumennsku fyrir tímabilið 2022. Hann tók við fyrirliðahlutverkinu af Hauki Páli Sigurðssyni sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil og tók á sama tíma við sem aðstoðarþjálfari Vals.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.