Smith Rowe og Nelson á förum - Chelsea náði samkomulagi við Aston Villa - Úrvalsdeildarfélög keppast um Abraham - Arsenal vill Nico Williams -...
   mið 22. maí 2024 09:11
Elvar Geir Magnússon
Davíð Snorri nýr aðstoðarþjálfari landsliðsins (Staðfest)
Hættir þjálfun U21 landsliðsins
Icelandair
Davíð Snorri Jónasson.
Davíð Snorri Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson hefur tekið við stöðu aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands og verður því Aga Hareide til aðstoðar. Hann tekur við af Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem lét af störfum á dögunum til að taka við AB í Danmörku.

Davíð hefur verið U21 landsliðsþjálfari en í tilkynningu frá KSÍ kemur fram að leit sé þegar hafin að nýjum þjálfara fyrir U21.

Af heimasíðu KSÍ:
KSÍ hefur gengið frá ráðningu Davíðs Snorra Jónassonar í stöðu aðstoðarþjálfara A landsliðs karla og verður hans fyrsta verkefni með liðinu komandi vináttuleikir gegn Englandi 7. júní og Hollandi 10. júní.

Davíð Snorri, sem er fæddur árið 1987 og hefur lokið KSÍ Pro gráðu, þjálfaði Leikni R. ásamt Frey Alexanderssyni árin 2013-2015 og komu þeir liðinu í efstu deild karla í fyrsta sinn í sögu þess árið 2015. Davíð þjálfaði U17 landslið karla árin 2018 til 2020 og fór m.a. með liðið alla leið í lokakeppni EM 2019, áður en hann tók við stjórnartaumunum hjá U21 landsliði karla í byrjun árs 2021 og hans fyrsta verkefni með liðinu var úrslitakeppni EM í Ungverjalandi það ár. Hann hefur þjálfað U21 liðið síðan þá við góðan orðstír og fór m.a. með liðið í umspil um sæti í lokakeppni EM 2023, en færir sig nú um set yfir til A landsliðsins.

KSÍ býður Davíð Snorra velkominn í nýtt hlutverk.

Leit að nýjum þjálfara U21 landsliðs karla er hafin. Næstu leikir liðsins eru í september, þegar undankeppni EM 2025 heldur áfram.
Athugasemdir
banner
banner