Man City setur verðmiða á Cancelo - Simons eftirsóttur - Lille hafnar Liverpool
   fös 24. maí 2024 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haugesund ræður fyrrum aðstoðarmann Óskars (Staðfest)
Sancheev Manoharan.
Sancheev Manoharan.
Mynd: Haugesund
Sancheev Manoharan hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við norska félagið Haugesund og er nýr aðalþjálfari liðsins. Hann tekur við liðinu af Óskari Hrafni Þorvaldssyni.

„Ég er mjög stoltur og þakklátur fyrir traustið sem félagið hefur sýnt mér," segir Manoharan.

Óskar Hrafn hætti óvænt með Haugesund fyrr í þessum mánuði.

TV2 í Noregi sagði frá því þegar Óskar hætti að ákveðin valdabarátta innan félagsins hefði orsakað uppsögn hans en hann hefur sjálfur ekki viljað tjá sig eftir tíðindin. Óskar stýrði Haugesund aðeins í sjö keppnisleikjum.

Óskar hafi viljað fá sinn eigin aðstoðarþjálfara en félagið hafi ráðið Manoharan í það starf. Manoharan stýrði Haugesund til bráðabirgða á síðasta tímabili.

Það hafi verið mikill munur á hugmyndafræði Óskars og sýn hans á fótbolta miðað við þjálfarateymið. Það er sagt að hann hafi farið á fund hjá félaginu og beðið um það að Manoharan yrði skipt út eða þá að hann myndi sjálfur segja af sér. Þegar félagið hafi ekki gert það sem Óskar vildi, þá hafi hann ákveðið að segja af sér.

Núna er Manoharan orðinn nýr aðalþjálfari liðsins en hann hefur stýrt Haugesund í undanförnum leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner