Fotbolti.net
23.05.24 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Systurnar Eydís og Hugrún í HK (Staðfest)

Systurnar mættar í HK.

Systurnar mættar í HK.

Canon

Mynd: HK

Hertz
Helgadæturnar Eydís og Hugrún, fæddar 2002, hafa samið við HK út tímabilið 2025.
Þær fylgdust að í gegnum yngri flokka Breiðabliks, ásamt því að spila með Augnabliki þar sem þær unnu 2. deildina og léku í fjögur ár með þeim í Lengjudeildinni.

Í fyrra léku þær með KR í Lengjudeildinni.

„Þær búa þó hvor í sínu fylkinu í Bandaríkjunum á veturna þar sem þær spila í háskólabolta þarlendis. Það er eitt af fáu sem skilur þær að. Reyndar spila þær ólíkar leikstöður, Eydís er kantmaður og Hugrún varnarmaður. Að öðru leyti verða þær vart greindar í sundur og kannski blessunarlega þar sem þær hafa fjölmarga góða kosti. Þar sem þær eru, þar er stemning, gleði og barátta," segir í tilkynningu HK.

Þær eru nýlega komnar til landsins frá Bandaríkjunum og eru mættar í hópinn hjá HK.

HK hefur tekið eitt stig úr fyrstu tveimur leikjunum í Lengjudeildinni en næsti leikur liðsins er gegn FHL annað kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.