Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24421 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.05.2024, 12:00

Mónakó kaupir Kehrer af West Ham (Staðfest)

Mónakó hefur gengið frá kaupum á þýska varnarmanninum Thilo Kehrer. West Ham keypti Kehrer af PSG sumarið 2022 og greiddi fyrir hann 10,5 milljónir punda. Mónakó greiddi um 500 þúsund pund til þess að fá Kehrer á láni í janúar og svo rétt tæplega 10 milljónir punda fyrir að fá Kehrer alfarið til félagsins núna.

FRÉTTIR17.05.2024, 10:28

Van Persie ráðinn stjóri Heerenveen (Staðfest)

Robin van Persie hefur verið ráðinn nýr stjóri hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Þessi fyrrum sóknarmaður Manchester United og Arsenal hefur verið að starfa við þjálfun ungra leikmanna Feyenoord. <i>„Þjálfarastarfið er yfirgripsmikið og krefjandi og ég stunda það af mikilli ástríðu og ánægju,“</i> segir Van Persie. <i>„Mig langar að halda áfram að þroskast og þróast í starfinu og þetta starf passar fullkomlega við það markmið.Heerenveen er mjög gott félag með ríka hefð og dygga stuðningsmenn. Það er frábær áskorun að geta lagt sitt af mörkum."</i>

FRÉTTIR17.05.2024, 09:08

Wagner rekinn eftir skellinn gegn Leeds (Staðfest)

David Wagner hefur verið rekinn frá Norwich en liðið fékk 4-0 skell gegn Leeds United í umspili Championship-deildarinnar í gær. Eftir tapið er ljóst að Norwich verður þriðja árið í röð í B-deildinni.

FRÉTTIR17.05.2024, 08:50

Thiago og Matip yfirgefa Liverpool (Staðfest)

Miðjumaðurinn Thiago Alcantara og varnarmaðurinn Joel Matip munu yfirgefa Liverpool eftir tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta. Thiago er 33 ára, fyrrum landsliðsmaður Spánar, og gekk í raðir Liverpool frá Bayern München 2020. Hann hefur spilað 98 leiki fyrir Liverpool. Matip er 32 ára og hefur spilað 201 leik, og skorað 11 mörk, fyrir Liverpool síðan hann kom frá Schalke 2016.

FRÉTTIR15.05.2024, 12:30

Aðstoðarmaður Klopp tekur við Salzburg (Staðfest)

Pep Lijnders hefur verið ráðinn aðalþjálfari Salzburg í Austurríki en þetta var tilkynnt núna fyrir stuttu. Lijnders hefur starfað fyrir Liverpool frá 2014. Fyrst var hann þjálfari U16 liðsins en síðustu árin hefur hann verið aðstoðarþjálfari Jurgen Klopp og starfað náið með honum. Klopp er að hætta sem stjóri Liverpool í sumar og fer Lijnders með honum.

FRÉTTIR15.05.2024, 12:03

Jói Kalli hættur sem aðstoðarlandsliðsþjálfari (Staðfest)

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur hefur óskað eftir því að láta störfum sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla og mun hann taka við þjálfun liðs AB sem er í þriðju efstu deild í Danmörku. Liðið er þar núna í sjötta sæti. Þetta eru heldur betur óvænt tíðindi þar sem Jóhannes Karl framlengdi samning sinn fyrir akkúrat mánuði síðan.

FRÉTTIR14.05.2024, 16:30

Olivier Giroud til Los Angeles FC (Staðfest)

Olivier Giroud mun í sumar ganga í raðir Los Angeles FC í Bandaríkjunum en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til 2025. Þetta var tilkynnt í dag. Félagið er svo með möguleika að framlengja samninginn til 2026.

FRÉTTIR14.05.2024, 10:17

Varane fer frá Man Utd eftir tímabilið (Staðfest)

Franski varnarmaðurinn Raphael Varane mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar. Félagið hefur staðfest þetta. Hinn 31 árs gamli Varane hefur verið þrjú síðustu tímabil á Old Trafford og leikið 93 leiki síðan hann kom frá Real Madrid 2021.

FRÉTTIR11.05.2024, 06:00

PSV kaupir Tillman frá Bayern (Staðfest)

Hollenska félagið PSV Eindhoven hefur gengið frá kaupum á bandaríska sóknartengiliðnum Malik Tillman frá Bayern München en þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska meistaraliðinu.

FRÉTTIR10.05.2024, 18:17

Mbappe yfirgefur PSG í sumar (Staðfest)

Kylian Mbappe, sóknarmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins, hefur staðfest að hann sé á förum frá PSG í sumar en hann sendi frá sér myndbandstilkynningu á samfélagsmiðlum í kvöld.

FRÉTTIR10.05.2024, 17:30

Guðjón Orri í KFK (Staðfest)

KFK í 3. deildinni hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar því markvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson hefur fengið félagaskipti til félagsins frá ÍBV.

FRÉTTIR10.05.2024, 13:09

Sveinn Margeir fer í UCLA (Staðfest)

Sveinn Margeir Hauksson, leikmaður KA, mun ekki klára tímabilið með KA en hann er á leið í háskólanám í Bandaríkjunum í haust. Sveinn er að hefja nám í UCLA háskólanum í borg englanna. Það er <i>Soccer & Education USA</I> sem greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. <i>„UCLA spilar í Big 10 í NCAA D1,"</I> segir í færslu fyrirtækisins sem hjálpar íþróttamönnum að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum. NCAA D1 er sterkasta deildin í háskólaboltanum. <i>„KA hefur sagt að það muni ekki standa í vegi fyrir strákum sem vilja fara í nám,"</I> sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, við Fótbolta.net þegar spurt var út í mögulegt háskólanám Sveins vestanhafs.

FRÉTTIR10.05.2024, 12:42

Gunnar Vatnhamar framlengir við Víking (Staðfest)

Víkingur hefur náð samkomulagi við Gunnar Vatnhamar um framlengingu á samningi hans við félagið. Fyrri samningur átti að renna út eftir yfirstandandi tímabil. Nýr samningur gildir til þriggja ára, út tímabilið 2027.

FRÉTTIR10.05.2024, 11:19

Eysteinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ (Staðfest)

Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ og mun hefja störf þann 1. september. Þangað til mun Jörundur Áki Sveinsson halda áfram að sinna starfinu. Eysteinn mun láta af störfum hjá Breiðabliki þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri og taka við starfinu í Laugardalnum af Klöru Bjartmarz sem hætti eftir síðasta ársþing sambandsins. <i>„Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir hæfir einstaklingar sóttu um starf framkvæmdastjóra,"</I> segir Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ í yfirlýsingu sem sjá má í heild hér að neðan.

FRÉTTIR10.05.2024, 07:52

Óskar Hrafn hættur með Haugesund (Staðfest)

Norska félagið Haugesund hefur tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé ekki lengur þjálfari liðsins. Fram kemur í yfirlýsingu á vef Haugesund að Óskar hafi tilkynnt stjórn félagsins það í gær að hann ætlaði sér að hætta störfum. Ekki kemur fram í tilkynningunni af hverju hann hættir.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.