Guðjón Orri í KFK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFK í 3. deildinni hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar því markvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson hefur fengið félagaskipti til félagsins frá ÍBV.

TENGT EFNI
Guðjón Orri yfirgefur ÍBV
Guðjón Orri er 31 árs markvörður sem var fjarri góðu gamni á síðasta tímabili. Hann lék 18 leiki með ÍBV sumarið 2022 í efstu deild.
Hann á að baki 51 leik í efstu deild, 22 leiki í B-deild og 12 leiki með KFS í 4. deild. Hann hefur á sínum ferli verið hjá ÍBV, KFS, Selfossi, Stjörnunni og KR.
KFK er með þrjú stig eftir eina umferð í deildinni. Næsti leikur liðsins verður gegn Magna á gervigrasinu í Fagralundi á morgun.