Arnar rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Íslands (Staðfest)
Arnar Þór Viðarsson hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Íslands. KSí var að tilkynna um þetta.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25186 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Arnar Þór Viðarsson hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Íslands. KSí var að tilkynna um þetta.
Ægir hefur gengið frá samningi við serbneskan bakvörð sem mun leika með félaginu í sumar. Bakvörðurinn heitir Sladjan Mijatovic og er með reynslu úr serbnesku úrvalsdeildinni.
Halldór Orri Björnsson hefur fengið félagaskipti í KFG frá Stjörnunni, KFG er venslafélag Stjörnunnar. Halldór Orri lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 en hefur tekið þá af hillunni og ætlar að verða til taks með KFG í leikjum í sumar. Fótbolti.net ræddi við hinn 36 ára gamla Halldór í dag.

Viktor Elmar Gautason er genginn til liðs við Augnablik en hann kemur til liðsins frá Breiðabliki.

Ólafur Örn Ásgeirsson er genginn til liðs við Þrótt Vögum en hann kemur til liðsins frá HK á láni.

Ungverjaland 0 - 2 Ísland 0-1 Orri Steinn Óskarsson ('67) 0-2 Hilmir Rafn Mikaelsson ('90+) Íslenska U19 landsliðið hefur unnið það afreka að tryggja sér sæti í lokakeppni EM U19 landsliða sem fram fer á Möltu í júlí. Alls taka átta lið þátt í lokakeppninni.

Þór/KA var að tryggja sér liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna. Melissa Anne Lowder mun spila með liðinu út komandi tímabil og mun veita alvöru samkeppni fyrir Hörpu Jóhannsdóttur, sem hefur verið aðalmarkvörður Þórs/KA í næstum því þrjú ár.

Portúgalski kantmaðurinn Ivo Braz er genginn til liðs við Ægi og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Antonio Conte er hættur sem stjóri Tottenham Hotspur á Englandi en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.

Kvennalið Selfoss hefur heldur betur tekist að krækja sér í öflugan leikmann sem kemur til félagsins á lánssamningi sem gildir út júní. Jimena López mun því leika með Selfossi fyrri hluta sumars.

Grindavík er búið að krækja í tvo efnilega leikmenn á lánssamningum frá Stjörnunni sem munu spila með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar. Þær eru Mist Smáradóttir og Heiðdís Emma Sigurðardóttir, báðar fæddar 2005.

FC Bayern hefur staðfest þjálfaraskipti innan félagsins. Julian Nagelsmann er rekinn og tekur Thomas Tuchel við stöðu hans sem aðalþjálfari langsigursælasta félags Þýskalands.

Vestri hefur gengið frá samningi við brasilískan markvörð sem mun leika með félaginu í sumar.
Daði Bergsson, sem uppalinn er hjá Þrótti, hefur fengið félagaskipti í SR og getur því leikið með liðinu gegn Hamri í C-deild Lengjubikarnum í kvöld. Daði var leikmaður Kórdrengja í Lengjudeildinni í fyrra en er nú kominn í B-riðil 5. deildar.
Stjarnan er búið að krækja í miðjumanninn Baldur Loga Guðlaugsson en hann kemur til félagsins frá FH. Fótbolti.net hefur fengið þær upplýsingar að Stjarnan kaupi Baldur frá FH-ingum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt. Hún mun leika með KR í Lengjudeildinni á láni í sumar.
Mesut Özil tilkynnti í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna og ferlinum væri því lokið. Özil er 34 ára og var á samningi hjá Istanbul Basaksehir í Tyrklandi. Hann kom aðeins við sögu í átta leikjum á tímabilinu, missti mikið út vegna bakmeiðsla. Hann kallar þetta gott á þessum tímapunkti þrátt fyrir að tveir mánuðir séu eftir af tímabilinu.

Kári Gautason og Þorvaldur Daði Jónsson hafa skrifað undir lánssamning út sumarið hjá Dalvík/Reyni en þeir koma til félagsins frá KA.

Eygló Erna Kristjánsdóttir hefur skrifað undir eins árs samning við KR en hún kemur til liðsins frá Hamri.

Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska markvörðinn Aitor Gonzalez um að hann muni spila með félaginu í sumar.