Fotbolti.net
22.03.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Dalvík/Reynir fær tvo á láni frá KA (Staðfest)

Kári Gautason í leik með KA

Kári Gautason í leik með KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Gautason og Þorvaldur Daði Jónsson hafa skrifað undir lánssamning út sumarið hjá Dalvík/Reyni en þeir koma til félagsins frá KA.

Kári er bakvörður en hann spilaði sinn fyrsta leik í Bestu deildinni síðasta sumar ásamt því að spila einn leik í Mjólkurbikarnum. Hann lék 8 leiki með Magna á láni seinni hluta síðasta sumars.

Þorvaldur er miðjumaður að upplagi en getur leyst allar stöður á vellinum. Hann lék alla 22 leikina með KF í 2. deild á láni síðasta sumar og skoraði í þeim sjö mörk.

„Við bjóðum þá félaga innilega velkomna og hlökkum til að sjá þá í bláu í sumar," segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.