Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25186 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.03.2023, 16:00

Sevilla búið að reka Sampaoli (Staðfest)

Sevilla hefur staðfest að félagið sé búið að reka Jorge Sampaoli úr stjórastóli liðsins. Liðið er sem stendur aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu í spænsku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR21.03.2023, 08:58

Hodgson tekur við Crystal Palace aftur (Staðfest)

Crystal Palace hefur ráðið Roy Hodgson aftur til starfa, en félagið staðfestir þetta í tilkynningu núna í morgunsárið. Paddy McCarthy, sem stýrði Palace gegn Arsenal um liðna helgi, verður aðstoðarþjálfari Hodgson.

FRÉTTIR20.03.2023, 16:00

Ægir fær Þorgeir frá Magna (Staðfest)

Ægir tilkynnti í dag að Þorgeir Ingvarsson væri genginn í raðir félagsins, kemur frá Magna á Grenivík. Þorgeir er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bakvörð, miðju og jafnvel brugðið sér í sóknina.

FRÉTTIR20.03.2023, 09:13

Hamren rekinn frá Álaborg (Staðfest)

Búið er að reka Erik Hamren, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands, úr starfi þjálfara hjá AaB í Danmörku. AaB frá Álaborg lék gegn Randers á heimavelli í gær og tapaði 0-1. Var það síðasti leikur Hamren við stjórnvölinn.

FRÉTTIR19.03.2023, 08:00

Ægir fær tvo á láni frá Fjölni (Staðfest)

Daníel Smári Sigurðsson og Baldvin Þór Berndsen spila með Ægi í Lengudeildinni í sumar á láni frá Fjölni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ægismönnum.

FRÉTTIR16.03.2023, 15:54

Diljá aftur til Norrköping (Staðfest) - Stuttur samningur

Norrköping tilkynnti í dag að íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers væri aftur mætt til félagsins. Hún var hjá félaginu á láni frá Häcken seinni hluta síðasta tímabils en skiptir nú alfarið yfir. Hún skrifar undir samning sem gildir út fyrri hluta komandi tímabils, til 10. júlí en þá hefst sumarfrí á sænsku deildinni.

FRÉTTIR16.03.2023, 12:11

Agla María gerir tveggja ára samning við Breiðablik (Staðfest)

<i>„Við færum ykkur gleðifréttir á þessum frábæra fimmtudegi,"</I> segir í tilkynningu Breiðabliks, en landsliðskonan Agla María Albertsdóttir er búin að gera tveggja ára samning við félagið - út árið 2024. Hún kemur í Kópavoginn frá Häcken í Svíþjóð.

FRÉTTIR15.03.2023, 11:07

Andri Steinn þjálfar Þrótt Vogum með Binna Gests (Staðfest)

Þróttur Vogum hefur samið við Andra Stein Birgisson um að koma inn í þjálfarateymi liðsins. Andri verður annar af tveimur aðalþjálfurum liðsins, fyrir er Brynjar Þór Gestsson sem stýrði liðinu síðustu sextán leikina í fyrra. Hreinn Ingi Örnólfsson er svo spilandi aðstoðarþjálfari. Andri Steinn þekkir hvern krók og kima í Vogunum því þar fékk hann sitt fyrsta tækifæri sem aðalþjálfari, stýrði liðinu tímabilið 2015 og hluta af tímabilinu 2016. Í kjölfarið þjálfaði hann Hvíta riddarann, var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val og var með Davíð Smára Lamude í þjálfarateymi hjá Kórdrengjum.

FRÉTTIR14.03.2023, 14:25

Unglingalandsliðskonan Ísabella Sara fer í Val (Staðfest)

Íslands- og bikarmeistarar Vals hafa samið við einn efnilegasta leikmann landsins þar sem Ísabella Sara Tryggvadóttir er komin til félagsins frá KR. Ísabella Sara var með samning við KR sem gilti til ársins 2023 en hefur núna fengið félagaskipti yfir í Val.

FRÉTTIR14.03.2023, 07:20

Binni Hlö verður með Leikni í sumar (Staðfest)

<p>Leiknir R. hefur staðfest að Brynjar Hlöðversson mun spila með liðinu í sumar. Brynjar, sem er 33 ára, er goðsögn hjá Leikni þar sem hann er uppalinn hjá félaginu og á um 300 leiki að baki.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.