Fotbolti.net
21.03.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

KF fær einn frá Þór og einn frá KA (Staðfest)

KF fær einn frá Þór og einn frá KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KF - Facebook

KF hefur fengið tvo leikmenn til liðs við sig en Dagbjartur Búi Davíðsson kemur frá KA og Rúnar Freyr Egilsson kemur frá Þór.

Dagbjartur er fæddur árið 2006 og hefur verið að æfa með félaginu að undanförnu og spilaði sinn fyrsta leik þegar KF lagði Magna í Lengjubikarnum á sunnudaginn.

Hann lék þrjá leiki með Hömrunum í 4. deild síðasta sumar og skoraði í þeim fimm mörk.

Rúnar er fæddur árið 2003 og hefur verið hjá KF síðan í nóvember og hefur tekið þátt í öllum þremur leikjum liðsins í Lengjubikarnum.

„Báðir eru þeir Rúnar og Dagbjartur að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokk og verður gríðarleg spennandi að sjá þá á vellinum í bláu í sumar!," segir í tilkynningu frá félaginu.

KF fær einn frá Þór og einn frá KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KF - Facebook

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.