Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.02.2026, 10:03

Kolbeinn til Valerenga á láni (Staðfest)

Kolbeinn Finnsson hefur gengið í raðir norska félagsins Valerenga á láni frá Utrecht út tímabilið. Lánssamningurinn gildir til 30. júní en norska félagið er með kaupákvæði í samningnum.

FRÉTTIR02.02.2026, 09:44

Gruda lánaður til RB Leipzig (Staðfest)

Brajan Gruda leikmaður Brighton hefur gengið í raðir þýska Bundesligufélagsins RB Leipzig á láni frá Brighton út tímabilið. Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, segir að Gruda hafi viljað meiri spiltíma og hann hafi ekki getað lofað honum því seinni hluta tímabilsins. <i>„Þessi lánssamningur er góð lausn fyrir alla aðila. Þetta gefur honum tækifæri á að þróa sig áfram. Við óskum honum góðs gengis út tímabilið,"</i> segir Hurzeler. RB Leipzig er í fimmta sæti þýsku deildarinanr en stöðutöfluna má sjá hér fyrir neðan.

FRÉTTIR01.02.2026, 21:50

Jérémie Boga til Juventus (Staðfest)

Ítalska stórveldið Juventus staðfesti félagaskipti Jérémie Boga skömmu fyrir upphafsflautið í leik liðsins gegn Parma í Serie A.

FRÉTTIR01.02.2026, 16:34

Maignan orðinn launahæstur (Staðfest)

Franski markvörðurinn Mike Maignan verður áfram hjá AC Milan eftir að félaginu tókst að gera langtímasamning við hann. Maignan verður með nýja samningnum launahæsti leikmaður félagsins ásamt nokkrum stjörnum.

FRÉTTIR01.02.2026, 11:47

Ortega frá Man City til Nottingham Forest (Staðfest)

Þýski markvörðurinn Stefan Ortega er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Man City. Kaupverðið gæti orðið allt að 500 þúsund pund en hann skrifar undir samning út tímabilið.

FRÉTTIR01.02.2026, 08:00

Gilardino rekinn frá Pisa (Staðfest)

Ítalska A-deildarfélagið Pisa hefur sparkað þjálfaranum Alberto Gilardino eftir aðeins rúma sex mánuði í starfi en þetta tilkynnti félagið eftir 3-1 tapið gegn Sassuolo í gær.

FRÉTTIR31.01.2026, 12:25

Guy Smit til Njarðvíkur (Staðfest)

Guy Smit er genginn til liðs við Njarðvíkur en hann kemur frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili. Hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2027. Smit er þrítugur Hollendingur en hann kom fyrst hingað til lands árið 2020 til að spila með Leikni. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni.

FRÉTTIR30.01.2026, 17:00

Insigne snýr aftur í ítalska boltann (Staðfest)

Ítalski vængmaðurinn Lorenzo Insigne er genginn í raðir Pescara en hann hefur verið án félags frá því í sumar er hann rifti samningi sínum við Toronto í MLS-deildinni.

FRÉTTIR30.01.2026, 16:29

Bragi Karl keyptur til Njarðvíkur (Staðfest)

Sóknarleikmaðurinn Bragi Karl Bjarkason hefur verið keyptur frá FH til Njarðvíkur. Talað hefur verið um að kaupverðið sé um fjórar milljónir króna. Bragi er 23 ára og var eitt ár hjá FH, eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu, ÍR. <i>Bragi gerir samning við Njarðvík út keppnistímabilið 2029, og hefur æfingar með nýju liðsfélögum sínum í dag. Knattspyrnudeild Njarðvíkur býður Braga Karl hjartanlega velkominn til Njarðvíkur og hlakkar mikið til að sjá hann í grænu treyjunni næstu árin!"</i> segir í tilkynningu Njarðvíkinga.

FRÉTTIR30.01.2026, 13:09

Jón Vignir í Aftureldingu (Staðfest)

Jón Vignir Pétursson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu en hann kemur á frjálsri sölu frá Selfossi þar sem samningur hans við uppeldisfélagið rann út eftir síðasta tímabilið. Fótbolti.net sagði frá því í gær að Jón Vignir væri á leið til Aftureldingar. Jón er 22 ára gamall en hann hefur á ferli sínum spilað á miðjunni og sem miðvörður. Hann hefur verið lykilmaður hjá Selfossi síðustu tímabil og verið fyrirliði liðsins frá árinu 2023. Hann er fæddur árið 2003, á að baki sex tímabil í meistaraflokki og hefur alls spilað ríflega 150 leiki fyrir félagið. Hann meiddist illa í júlí í fyrra og er að komast af stað aftur.

FRÉTTIR30.01.2026, 12:58

Oscar Bobb til Fulham (Staðfest) - City setur varnagla

Fulham hefur gengið frá kaupum á norska leikmanninum Oscar Bobb frá Manchester City. Fulham greiðir 27 milljónir punda fyrir Bobb sem gerir fimm og hálfs árs samning. Hluti af samkomulaginu milli félaganna er að Cityfái 20% af næstu sölu á Bobb og þegar Fulham samþykkir tilboð frá öðru félagi þá geti City jafnað það tilboð. Bobb, sem er 22 ára, getur bæði spilað miðsvæðis og á kantinum. Hann var mjög heitur komandi inn í tímabilið 2024/25 en meiddist illa og hefur ekki náð að tengja saman marga leiki með City frá þeim meiðslum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.