Willum Þór Willumsson er búinn að skrifa undir samning hjá NEC Nijmegen í efstu deild í Hollandi.
Willum Þór snýr því aftur í hollenska boltann eftir eins og hálfs árs dvöl hjá Birmingham á Englandi.
Willum var mikilvægur hlekkur er Birmingham komst upp úr League One deildinni í fyrra en fann sig svo ekki í Championship deildinni. Því hefur félagið ákveðið að selja hann aftur til Hollands.
Kaupverðið er óuppgefið en Willum var lykilmaður í liði Go Ahead Eagles áður en hann var keyptur til Englands.
Nijmegen er að eiga draumatímabil í efstu deild hollenska boltans þar sem liðið er óvænt í þriðja sæti með 38 stig eftir 20 umferðir.
Willum mun heimsækja yngri bróður sinn Brynjólf Andersen Willumsson til Groningen í næstsíðustu umferð deildartímabilsins áður en hann tekur á móti fyrrum liðsfélögum sínum í Go Ahead Eagles í lokaumferðinni, en þeir eru einnig með Alfons Sampsted innanborðs sem var samherji Willums í Birmingham.
Athugasemdir




