Ítalska stórveldið Juventus staðfesti félagaskipti Jérémie Boga skömmu fyrir upphafsflautið í leik liðsins gegn Parma í Serie A.
01.02.2026 09:30
Juventus að landa Boga „Here we go!"
Boga er 29 ára kantmaður sem þekkir vel til í ítalska boltanum eftir að hafa leikið með Sassuolo og Atalanta í efstu deild.
Hann kemur til Juve á lánssamningi út tímabilið með 5 milljón evru kaupmöguleika.
Juventus hefur unnið að því allan janúar að reyna að bæta við mannskapi í sóknarlínuna hjá sér en tilraunir félagsins hafa ekki borið mikinn árangur hingað til.
Boga kemur til Juve úr röðum Nice þar sem honum mistókst að vinna sér inn byrjunarliðssæti og kom að fjórum mörkum í 20 leikjum á yfirstandandi tímabili.
Boga lék fyrir U19 landslið Frakklands en ólst upp hjá Chelsea frá 12 ára aldri. Hann á 25 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina.
?? Welcome to Juventus, Jeremie Boga! ????
— JuventusFC ???????????????? (@juventusfcen) February 1, 2026
???? https://t.co/HNSJcOUhgL@Jeep pic.twitter.com/70g2k0HLjH
Athugasemdir




