Ítalska A-deildarfélagið Pisa hefur sparkað þjálfaranum Alberto Gilardino eftir aðeins rúma sex mánuði í starfi en þetta tilkynnti félagið eftir 3-1 tapið gegn Sassuolo í gær.
Filippo Inzaghi stýrði Pisa upp í A-deildina á síðustu leiktíð en hætti með liðið eftir tímabilið.
Gilardino, sem hafði áður þjálfað Genoa, Siena og Pro Vercelli, tók við liðinu og fékk það verkefni að gera liðið samkeppnishæft í deild þeirra bestu.
Hann náði í fyrsta og eina sigur Pisa á tímabilinu í gegn Cremonese í nóvember, en liðið gerði ellefu jafntefli og tapaði ellefu undir hans stjórn. Ellefta tapið kom í gær og var það kornið sem fyllti mælinn en hann hefur nú verið látinn taka föggur sínar.
Samkvæmt Gianluca Di Marzio er félagið að skoða það að fá Marco Giampaolo eða Robert D´Aversa til að taka við.
Pisa er í næst neðsta sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti eftir 23 umferðir.
Athugasemdir



