Kolbeinn Finnsson hefur gengið í raðir norska félagsins Valerenga á láni frá Utrecht út tímabilið. Lánssamningurinn gildir til 30. júní en norska félagið er með kaupákvæði í samningnum.
Kolbeinn var í litlu hlutverki hjá Utrecht í Hollandi, en hann lék aðeins tíu keppnisleiki á einu og hálfu ári.
Hann var á mála hjá Lyngby í Danmörku áður en hann var keyptur til Utrecht, en Kolbeinn hefur einnig verið samningsbundinn Brentford, Borussia Dortmund og Groningen á ferlinum.
Kolbeinn er 26 ára vinstri bakvörður, uppalinn hjá Fylki, sem á 14 landsleiki að baki fyrir Ísland eftir að hafa verið mikill lykilmaður upp yngri landsliðin.
Valerenga endaði í 6. sæti Eliteserien á síðasta tímabili, en norska deildin hefst um miðjan mars.
Athugasemdir




