FRÉTTIR21.01.2026, 06:00
Marc Andre ter Stegen hefur skrifað undir samning við Girona en hann kemur á láni út tímabilið frá Barcelona.
Ter Stegen meiddist illa á síðustu leiktíð en hann hefur fallið niður goggunarröðina hjá Barcelona eftir að hann sneri aftur með komu Joan Garcia og Wojciech Szczesny.
FRÉTTIR20.01.2026, 20:00
Rósey Björgvinsdóttir er gengin til liðs við Þrótt frá FHL. Hún skrifar undir þriggja ára samning.
Rósey er varnarmaður og er fædd árið 2004 en hún var fyrirliði FHL sem féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR20.01.2026, 13:00
Telma Steindórsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna. Hún kemur til Stjörnunnar eftir að hafa spilað í þrjú ár með Fram.
Hún er tvítugur varnarmaður sem Stjarnan bindur miklar vonir við. Telma, sem á að baki sex unglingalandsleiki, er uppalin hjá Val og hefur leikið með KH, KR og HK ásamt Fram á meistaraflokksferlinum.
FRÉTTIR20.01.2026, 09:55
Bournemouth hefur keypt ungverska miðjumanninn Alex Tóth frá Ferencvaros fyrir 10,4 milljónir punda.
Þessi tvítugi leikmaður hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Bournemouth.
Tóth á níu landsleiki fyrir Ungverja en Benfica, Galatasaray og Lazio höfðu einnig sýnt honum áhuga.
FRÉTTIR20.01.2026, 06:00
Víkingur Ólafsvík hefur tilkynnt nýjan leikmann en Bandaríkjamaðurinn Jackson Vander Ven er kominn til félagsins frá Flatirons FC sem leikur í USL 2-deildinni í Bandaríkjunum.
FRÉTTIR19.01.2026, 20:50
Bryndís Arna Níelsdóttir er gengin til liðs við Breiðabliks en félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum í kvöld.
FRÉTTIR19.01.2026, 18:14
Hinn hálf-íslenski Eyþór Martin Björgólfsson er mættur til skoska úrvalsdeildarfélagsins Motherwell frá Umeå FC í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu Motherwell í kvöld.
FRÉTTIR19.01.2026, 17:32
Jonathan Rasheed er genginn í raðir Gautaborgar frá KA. Rasheed gekk til liðs við KA fyrir síðasta tímabil og skrifaði undir 1+1 samning við liðið.
Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin skömmu eftir komu sína til Íslands og náði einungis þremur leikjum með KA undir lok tímabils.
Rasheed var með Gautaborg í æfingaferð liðsins og hefur nú skrifað undir samning út komandi tímabil í Allsvenskan með möguleika á að framlengja um eitt ár.
FRÉTTIR19.01.2026, 17:30
Fyrrum landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson hefur glímt við áfengis- og spilafíkn. Hann opnaði sig um vandamálið í viðtali við Fótbolta.net.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR19.01.2026, 16:42
Manchester City hefur tilkynnt komu enska varnarmannsins Marc Guehi. Hann kemur frá Crystal Palace og skrifar undir fimm og hálfs árs langan samning.
Guehi, var að renna út af samningi við Crystal Palace í sumar, en City lagði fram tilboð eftir meiðsli varnarmanna liðsins, Josko Gvardiol og Ruben Dias.
FRÉTTIR19.01.2026, 15:10
Eiður Jack Erlingsson er genginn í raðir Þróttar í Vogum eftir að hafa verið hjá ÍBV seinni hluta síðasta tímabils.
Eiður þekkir til í Vogum eftir að hafa leikið á láni með liðinu tímabilið 2024.
Hann er uppalinn i Þrótti Reykjavík en yfirgaf Laugardalinn í sumar. Hann lék einnig með FH í yngri flokkum.
FRÉTTIR19.01.2026, 13:00
Jack Harrison er genginn í raðir ítalska félagsins Fiorentina frá Leeds á láni út tímabilið. Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Fiorentina er með ákvæði í samningnum um að gera skiptin varanleg.
Harrison hefur verið undanfarin tvö tímabil á láni hjá Everton. Engledingurinn hefur komið við sögu í 13 leikjum Leeds á tímabilinu, en einungis byrjað þrjá þeirra.
Hjá Fiorentina verður Harrison liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar.
FRÉTTIR19.01.2026, 11:46
Þeir Þorkell og Þóroddur Víkingsson hafa yfirgefið Fylki. Þetta hefur Fótbolti.net fengið staðfest.
Þeir voru með áframhaldandi samning við félagið en er nú frjálst að finna sér nýtt félag.
Tvíburarnir eru nýorðnir 22 ára og eru þeir uppaldir hjá Fylki.
FRÉTTIR19.01.2026, 08:30
Þorleifur Úlfarsson er fluttur aftur til Bandaríkjanna þar sem hann er búinn að skrifa undir samning við Loudoun United.
FRÉTTIR19.01.2026, 08:00
Það hefur verið ýmislegt að frétta hjá FHL í vetur þar sem félagið er meðal annars búið að ráða inn nýjan aðstoðarþjálfara og styrktarþjálfara, auk þess að semja við mikilvæga leikmenn.
FRÉTTIR19.01.2026, 06:00
Höttur er búinn að krækja sér í vænlegan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deildinni.
FRÉTTIR19.01.2026, 06:00
Fram er búið að krækja í Kristu Dís Kristinsdóttur úr röðum Þórs/KA og er hún annar leikmaðurinn sem liðið staðfestir á skömmum tíma eftir komu Löru Margrétar Jónsdóttur úr röðum Tindastóls.
FRÉTTIR19.01.2026, 06:00
Kvennalið Vestra á Ísafirði er búið að styrkja sig gríðarlega fyrir komandi átök næsta keppnistímabils.
FRÉTTIR18.01.2026, 23:20
Skoska stórveldið Rangers er búið að krækja í öflugan kantmann til að styrkja hópinn sinn fyrir seinni hluta tímabils.
FRÉTTIR18.01.2026, 20:13
Ítalska félagið Atalanta er búið að festa kaup á framherjanum knáa Giacomo Raspadori sem kemur úr röðum Atlético Madrid.