Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.01.2026, 10:51

Rosenior tekinn við Chelsea (Staðfest) - Sex ára samningur

Englendingurinn Liam Rosenior er tekinn við sem stjóri Chelsea. Hann skrifar undir samning til ársins 2032. Rosenior tekur við af Ítalanum Enzo Maresca sem lét af störfum á nýársdag. Rosenior kemur til Chelsea frá Strasbourg en félagið er í eigu BlueCo líkt og Chelsea.

FRÉTTIR05.01.2026, 15:40

Celtic rekur stjórann eftir aðeins átta leiki (Staðfest)

Skoska stórliðið Celtic hefur sagt upp franska þjálfaranum Wilfreid Nancy. Hann hefur aðeins verið með liðið í rúman mánuð en gengið hefur ekki verið ásættanlegt. Sá franski stýrði liðinu í átta leikjum og tapaði sex þeirra. Nancy tók við stjórnartaumunum 4. desember og leysti af Martin O'Neil, sem hafði verið ráðinn bráðabirgðastjóri eftir að Brendan Rodgers sagði óvænt af sér. Liðið vann sjö af átta leikjum undir stjórn O'Neil. Celtic situr í 2. sæti skosku deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Hearts. Liðið tapaði fyrir erkifjendunum í Rangers um helgina og reyndist það vera dropinn sem fyllti mælinn. Nancy kom til Celtic frá bandaríska félaginu Columbus Crew en hann vann tvo titla við stjórnvölin hjá félaginu. Þá var hann þjálfari ársins í fyrra.

FRÉTTIR05.01.2026, 14:26

Castellanos til West Ham (Staðfest)

West Ham hefur opinberlega kynnt sóknarmanninn Valentin 'Taty' Castellanos sem nýjan leikmann liðsins. Hann kemur frá Lazio og gerði fjögurra og hálfs árs samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar. Þessi 27 ára leikmaður gekk í raðir Lazio 2023 og lék 98 leiki, skoraði 22 mörk og átti 16 stoðsendingar.

FRÉTTIR05.01.2026, 10:40

Cole Campbell til Hoffenheim (Staðfest) - Lán með klásúlu

Hinn 19 ára gamli Cole Campbell hefur verið lánaður innan Þýskalands frá Borussia Dortmund til Hoffenheim. Lánið er út tímabilið en í sammingnum er klásúla um möguleg kaup. Campbell spilaði með FH og Breiðabliki hér á landi en hann gat valið á milli þess að spila með íslenska og bandaríska landsliðinu og valdi að lokum það síðarnefnda. Hann fæddist í Houston, Texas, en móðir hans er íslensk. <i>„Cole er hæfileikaríkur kantmaður sem getur bætt sig enn frekar. Við höfum fylgst grannt með honum í nokkuð langan tíma. Hann er með hraða og gæði einn gegn einum. Hann getur verið notaður á ýmsan hátt á vængjunum,"</i> segir Andreas Schicker, íþróttastjóri Hoffenheim.

FRÉTTIR05.01.2026, 10:05

Amorim rekinn frá Man Utd (Staðfest)

Búið er að reka Ruben Amorim frá Manchester United. Það er David Ornstein hjá <i>The Athletic</i> sem greindi fyrst frá. Félagið staðfesti tíðindin svo klukkan 10:08. Amorim var stjóri félagsins í 14 mánuði, kom frá Sporting í Portúgal og tók við af Erik ten Hag. Hann hitti þá Jason Wilcox og Omar Berrada í morgun og þeir tjáðu honum tíðindin. Ornstein segir að Darren Fletcher, fyrrum leikmaður félagsins, taki við til bráðabirgða og líkur séu á því að félagið ráði ekki stjóra til frambúðar fyrr en næsta sumar. Fletcher hefur starfað sem U18 þjálfari hjá félaginu. Gengi United undir stjórn Amorim var ekki gott, sigurhlutfallið var undir 40%. Eftir jafnteflið gegn Leeds í gær hélt Amorim undirbúna ræðu um að hann hefði komið til United til að vera stjóri félagsins, ekki þjálfari liðsins. Líklegt er að þau ummæli hafi ekki fallið vel í kramið hjá ráðamönnum hjá félaginu. United situr í 6. sæti úrvalsdeildarinnar með 31 stig eftir 20 umferðir. Liðið endaði í 15. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og tapaði í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Í tilkynningu United er sagt að þeir sem leiði félagið telji ákvörðunina þá réttu á þessum tímapunkti og að hún eigi að gefa liðinu besta möguleikann á því að enda eins ofarlega og hægt er í úrvalsdeildinni í vor. Fletcher mun stýra liðinu gegn Burnley í næsta leik.

FRÉTTIR05.01.2026, 08:42

Emil Larsen til Vals (Staðfest)

Emil Alexander Thorsted Larsen hefur verið ráðinn markmannsþjálfari Vals. Hann mun starfa bæði með meistaraflokki karla og kvenna og í tilkynningu félagsins segir að hann muni færa markmönnum félagsins sérhæfða þjálfun á hæsta stigi.

FRÉTTIR05.01.2026, 06:00

Thiago Silva til Porto (Staðfest)

Miðvörðurinn goðsagnakenndi Thiago Silva er búinn að skrifa undir samning við portúgalska stórveldið FC Porto, sem gildir út tímabilið en inniheldur möguleika á eins árs framlengingu.

FRÉTTIR04.01.2026, 15:34

Ingimar Stöle í Val (Staðfest)

Ingimar Torbjörnsson Stöle er genginn til liðs við Val frá KA á frjálsri sölu þar sem samningurinn hans rann út. Ingimar er 21 árs gamall og er uppalinn í Fjölni. Hann lék með Viking í Noregi áður en hann kom aftur heim og fór í KA árið 2023. Hann var á láni hjá FH seinni hluta tímabilsins 2024. Fótbolti.net sagði frá því í nóvember að Ingimar væri á leið í Val.

FRÉTTIR03.01.2026, 06:00

Araujo til Celtic (Staðfest)

Celtic er búið að tryggja sér varnarmanninn Julián Araujo á lánssamningi frá Bournemouth sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR02.01.2026, 21:13

West Ham kaupir Pablo (Staðfest)

Fallbaráttulið West Ham United er búið að staðfesta kaup á brasilíska framherjanum Pablo sem kemur til liðsins úr röðum Gil Vicente í Portúgal.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.