Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25090 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.12.2025, 10:14

Arnar Breki skrifar undir þriggja ára samning í Eyjum (Staðfest)

Arnar Breki Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV en fyrri samningur hans við félagið rann út í síðasta mánuði. Hann er nú samningsbundinn til næstu þriggja ára. Arnar Breki er uppalinn Eyjamaður sem getur bæði spilað í fremstu línu og á kantinum. Hann er 23 ára og að baki 140 KSÍ leiki, alla fyrir ÍBV eða venslaliðið KFS. Í þeim hefur hann skorað 18 mörk. Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 21 leik og lagði samkvæmt <i>Fotmob</i> upp tvö mörk.

FRÉTTIR01.12.2025, 21:19

Siggi Raggi ráðinn þjálfari NSÍ í Færeyjum (Staðfest) - Tilkynnt á afmælisdaginn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska liðsins NSÍ Runavík. Félagið tilkynnti þetta í kvöld á 52 ára afmælisdegi Sigga. Hann skrifar undir eins árs samning. NSÍ hafnaði í 3. sæti færeysku deildarinnar á síðustu leiktíð en Daniel Obbekjær og Klæmint Olsen, fyrrum leikmenn Breiðabliks, og Brandur Olsen, fyrrum leikmaður FH, eru á mála hjá félaginu.

FRÉTTIR01.12.2025, 17:53

Aron Einars í Njarðvík (Staðfest)

Aron Einarsson er genginn í raðir Njarðvíkur en hann kemur á frjálsri sölu frá Leikni þar sem samningur hans var runninn út. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Njarðvík fær í vetur en fyrr í þessum mánuði sömdu þeir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Alex Freyr Elísson við Njarðvíkinga. Aron er 23 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá Selfossi og hafði þar til 2024 leikið allan sinn feril með uppeldisliðinu. Hann gekk í raðir Leiknis eftir tímabilið 2023 og lék 34 leiki í Lengjudeildinni með Breiðhyltingum.

FRÉTTIR01.12.2025, 17:30

Ýmir áfram hjá Þór (Staðfest)

Ýmir Már Geirsson hefur framlengt samning sinn við Þór út tímabilið 2026. Hann er 28 ára vinstri bakvörður sem kom til Þórs fyrir tímabilið 2023. Hann hjálpaði Þór að vinna Lengjudeildina í sumar og verður með liðinu í Bestu deildinni á næsta tímabili. Hann lék 19 leiki í Lengjudeildinni í sumar og hefur hann nú leikið alls 55 leiki fyrir Þór en hann hefur einnig leikið með Magna, Dalvík/Reyni og fyrir uppeldisfélagið KA á meistaraflokksferli sínum. Hann kom inn í lið Þórs í 10. umferð Lengjudeildarinnar í sumar og leit ekki um öxl, byrjaði alla leiki nema einn eftir leikinn gegn Fjölni. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, ræddi um Ými í viðtali fyrr í vetur.

FRÉTTIR01.12.2025, 17:00

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Logi Ólafs, Aron Jó og Slot

Hulunni svipt af Loga Ólafs, Aron Jó leystur undan starfsskyldu og spjótin beindust að Arne Slot. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR30.11.2025, 20:07

Ágúst Hlyns í Þór (Staðfest)

Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn til liðs við Þór en hann snýr aftur til liðsins eftir fjórtán ára fjarveru. Ágúst er fæddur árið 2000 en hann kemur til liðsins frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari í sumar. Hann er uppalinn hjá Þór en fór til Breiðabliks í 4. flokki árið 2012. Hann hefur einnig spilað með Víking, FH og Val hér á landi.

FRÉTTIR30.11.2025, 11:57

Aron Dagur í Þrótt R. (Staðfest)

Markvörðurinn Aron Dagur Birnuson hefur verið lánaður frá Stjörnunni til Þróttar Reykjavíkur í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR29.11.2025, 17:31

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)

Atli Sigurjónsson er kominn aftur til Þórs en hann kemur frá KR. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Atli er uppalinn hjá Þór og var Íslandsmeistari með liðinu í 5. og 3. flokki. Hann hóf ferilinn með aðalliðinu aðeins 16 ára gamall og spilaði í næst efstu deild frá 2008-2010. Hann var lykilmaður í liðinu árið 2010 þegar Þór tryggði sér sæti í efstu deild.

FRÉTTIR28.11.2025, 20:47

Murielle kveður Fram (Staðfest)

Murielle Tiernan hefur staðfest ákvörðun sína um að yfirgefa Fram eftir að hafa verið meðal allra bestu leikmanna liðsins á nýliðinni leiktíð.

FRÉTTIR28.11.2025, 20:00

Pellegrini framlengir við Betis (Staðfest)

Síleski þjálfarinn Manuel Pellegrini er búinn að framlengja samning sinn við Real Betis um eitt ár. Hann gildir núna til sumarsins 2027, eða í eitt og hálft ár.

FRÉTTIR28.11.2025, 18:30

Ray Anthony: Eigum eftir að styrkja okkur betur

Ray Anthony Jónsson nýráðinn þjálfari Grindavíkur svaraði spurningum frá <i>Fótbolta.net</i> eftir að Damir Muminovic og Hjörvar Daði Arnarsson skrifuðu undir samninga við félagið í dag.

FRÉTTIR28.11.2025, 18:00

Hjörvar Daði: Markmiðið er að fara upp

Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson skrifaði undir samning við Grindavík í dag og svaraði spurningum frá Fótbolta.net eftir undirskriftina.

FRÉTTIR28.11.2025, 16:57

Damir og Hjörvar í Grindavík (Staðfest)

Varnarmaðurinn reynslumikli Damir Muminovic hefur samið við Lengjudeildarlið Grindavíkur. Félagið tilkynnti þetta nú síðdegis en markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson var kynntur við sama tilefni. Damir er 35 ára miðvörður sem tvisvar hefur orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki. Kópavogsfélagið tilkynnti það nýlega að ekki yrði gerður nýr samningur við hann.

FRÉTTIR28.11.2025, 12:28

Vestri krækir í mjög stóran prófíl (Staðfest)

Vestri hefur samið við Senegalann Pape Abou Cisse, frá þessu greinir félagið í dag. Pape er þrítugur að aldri, 1,97 cm á hæð, örvfættur og spilar sem hafsent. Hann býr yfir gríðarlegum styrk og hraða. Hann á 16 landsleiki fyrir Senegal og vann með þeim Afríkukeppnina árið 2022.

FRÉTTIR27.11.2025, 15:02

Fram sækir fyrsta leikmanninn (Staðfest) - Verið í liði ársins þrjú ár í röð

Fram hefur krækt í Brookelynn Paige Entz en hún kemur til félagsins frá Grindavík/Njarðvík. Hún er öflugur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur spilað síðustu fjögur tímabil á Íslandi. Hún varð Íslandsmeistari með Val 2022 og lék svo með HK 2023-24. Á síðasta tímabili lék hún svo með Grindavík/Njarðvík og hjálpaði liðinu að fara upp úr Lengjudeildinni. Hún hefur verið í liði ársins í Lengjudeildinni þrjú ár í röð. Hún á að baki 49 leiki í B-deild og hefur í þeim skorað 29 mörk. Hún skoraði eitt mark í ellefu deildarleikjum með Val. Hún er fyrsti leikmaðurinn sem Fram fær í vetur. Anton Ingi Rúnarsson tók við sem þjálfari liðsins í upphafi mánaðar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.