Fotbolti.net
29.11.25 - 17:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Atli Sigurjónsson er kominn aftur til Þórs en hann kemur frá KR. Hann skrifar undir tveggja ára samning.

Atli er uppalinn hjá Þór og var Íslandsmeistari með liðinu í 5. og 3. flokki. Hann hóf ferilinn með aðalliðinu aðeins 16 ára gamall og spilaði í næst efstu deild frá 2008-2010. Hann var lykilmaður í liðinu árið 2010 þegar Þór tryggði sér sæti í efstu deild.
Hann spilaði með liðinu í efstu deild árið 2011 en var síðan seldur til KR. Hann lék með Breiðabliki 2015 og 2016. Hann fór í stutta lánsdvöl frá KR til Þórs árið 2017. Hann varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari með KR. Atli hefur leikið 255 leiki í efstu deild og skorað 36 mörk og er fimmti leikjahæsti leikmaður í sögu KR.

Hann er nú kominn aftur í Þór og spilar með liðinu í efstu deild næsta sumar en liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni í fyrsta sinn í tólf ár með sigri í Lengju deildinni síðasta sumar.
Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.