Fotbolti.net
29.11.25 - 12:19
Brynjar Ingi Erluson

Andri Yeoman tekur átjánda tímabilið með Blikum (Staðfest)

Andri Rafn Yeoman mun taka 18. tímabilið með Blikum

Andri Rafn Yeoman mun taka 18. tímabilið með Blikum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Rafn Yeoman, leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks, hefur gert nýjan eins árs samning við félagið.
Andri Rafn er 33 ára gamall fjölhæfur leikmaður sem getur leystar margar stöður á vellinum.

Hann er leikjahæsti leikmaður félagsins með 489 leiki og fær nú tækifærið til að bæta við leikjum.

Andri hefur framlengt samning sinn út næsta tímabil og er því á leið inn í 18. tímabilið með Blikum.

Á síðasta tímabili lék hann 12 leiki og skoraði 1 mark er Blikar höfnuðu í 4. sæti Bestu deildarinnar.

„Við fögnum því að Andri Rafn ætli sér að taka annað tímabil með liðinu enda mikilvægur leikmaður og frábær fyrirmynd,“ segir í tilkynningu Blika.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.