Fotbolti.net
30.11.25 - 20:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ágúst Hlyns í Þór (Staðfest)

Ágúst Hlyns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn til liðs við Þór en hann snýr aftur til liðsins eftir fjórtán ára fjarveru.

Ágúst er fæddur árið 2000 en hann kemur til liðsins frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari í sumar. Hann er uppalinn hjá Þór en fór til Breiðabliks í 4. flokki árið 2012. Hann hefur einnig spilað með Víking, FH og Val hér á landi.
Hann gekk til liðs við Vestra síðasta sumar frá AB í Danmörku. Hann var á mála hjá unglingaliðum Norwich og Bröndby frá 2017-2019 og þá lék hann einnig með Horsens í Danmörku. Hann á 35 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Hann er annar leikmaðurinn sem Þór kynnir um helgina en Atli Sigurjónsson kom einnig aftur til Þórs en hann kom frá KR. Þór vann Lengjudeildina síðasta sumar og spilar því í Bestu deildinni næsta sumar í fyrsta sinn í 12 ár.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.