FRÉTTIR11.11.2025, 17:47
Eiður Aron Sigurbjörnsson er genginn til liðs við Njarðvík frá Vestra en hann skrifar undir eins árs samning.
Eiður Aron er 35 ára gamall varnarmaður. Hann gekk til liðs við Vestra frá uppeldisfélaginu sínu ÍBV í fyrra. Hann hefur einnig spilað með Val hér á landi. Hann spilaði með Örebro í Svíþjóð, Sandnes Ulf í Noregi og Holstein Kiel í Þýskalandi á atvinnumannaferlinum.
FRÉTTIR11.11.2025, 16:55
Óli Stefán Flóventsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Selfossi en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Fótbolti.net greindi frá því fyrir tæpum mánuði síðan að Óli Stefán hefði rætt við félagið. Hann tekur við liðinu af Bjarna Jóhannssyni sem steig til hliðar í haust eftir að liðið féll úr Lengjudeildinni.
FRÉTTIR11.11.2025, 14:26

Atalanta hefur ráðið Ítalann Raffaele Palladino sem nýjan stjóra félagsins. Króatinn Ivan Juric var í gærkvöld rekinn frá félaginu eftir einungis fimm mánuði í starfi.

Atalanta situr í 13. sæti í deildinni en síðasti sigurleikur liðsins í deild kom í lok septembermánaðar. Það sem af er tímabils hefur liðið unnið tvo leiki, tapað tveimur og gert sjö jafntefli.

Palladino stýrði síðast Fiorentina en þar á undan var hann þjálfari Monza. Palladino var við stjórnvölinn hjá Fiorentina þegar félagið sótti íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson.

Ítalinn sagði sjálfur upp störfum hjá Fiorentina eftir síðasta tímabil en hann var ekki í náðinni á meðal stuðningsmanna Fiorentina. Félagið reyndi þó að halda honum áfram, án árangurs.

FRÉTTIR10.11.2025, 23:30
Króatíski þjálfarinn Ivan Juric var í kvöld rekinn frá ítalska félaginu Atalanta eftir aðeins fimm mánuði í starfi.
FRÉTTIR10.11.2025, 21:55
Miðjumaðurinn Eva Rut Ásþórsdóttir er gengin aftur í raðir Fylkis frá Þór/KA. Þetta kemur fram í tilkynningu Fylkis í kvöld.
FRÉTTIR10.11.2025, 12:30
Fanney Lísa Jóhannesdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna. Fyrri samningur hefði runnið út í lok árs.
Hún er fædd árið 2009, er U19 landsliðskona sem kom við sögu í 21 deildarleik með Stjörnunni í sumar.
Hún var eftirsótt, var m.a. orðuð við Val hér á Fótbolti.net fyrr á þessu ári og sagt frá því að það félög erlendis væru með augastað á henni.
FRÉTTIR10.11.2025, 06:00
Nikulás Val Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fylki.
Nikulás er fæddur árið 2000 og er Fylkismaður í húð og hár. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2020 en KSÍ leikirnir eru orðnir 133 talsins og mörkin 18.
FRÉTTIR09.11.2025, 07:30
Norwich City hefur rekið Liam Manning úr starfi sínu sem þjálfari liðsins eftir sjöunda tapið á heimavelli í röð.
FRÉTTIR08.11.2025, 19:00
ÍR hefur tilkynnt Guðmund Guðjónsson sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks kvenna félagsins.
FRÉTTIR08.11.2025, 17:30
Björn Daníel Sverrisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Sindra um að taka við þjálfun meistaraflokks karla félagsins.
FRÉTTIR08.11.2025, 16:30
Vestramenn hafa tilkynnt Daniel Badu sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks karla. Vestri féll úr Bestu deildinni í sumar eftir hreinan úrslitaleik í lokaumferðinni gegn KR.
FRÉTTIR07.11.2025, 17:11
Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Leiknis í Breiðholti. Hann tekur við starfinu af Ágústi Gylfasyni sem lét af störfum eftir síðasta tímabil.
Ágúst tók við Leikni í júní á botni Lengjudeildarinnar en náði því markmiði að halda liðinu í deildinni. Leiknir hafnaði í níunda sæti.
FRÉTTIR07.11.2025, 16:30
Jonathan Glenn hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna á Selfossi og gerir hann tveggja ára samning við félagið. Hann tekur við starfinu af Gunnari Borgþórssyni sem hætti eftir síðastliðið tímabil.
FRÉTTIR07.11.2025, 14:25
Paolo Vanoli hefur verið ráðinn nýr stjóri Fiorentina. Þessi fyrrum stjóri Torino fer beint með Fiorentina í fallbaráttuslag gegn Genoa klukkan 14 á sunnudaginn.
Albert Guðmundsson leikur fyrir Fiorentina sem er í neðsta sæti með aðeins tveimur stigum minna en Genoa. Albert er kominn aftur til Flórens eftir að hafa verið á Íslandi í vikunni og hann verður með í komandi leik.
Eftir það heldur Albert svo til Aserbaísjan þar sem Ísland mætir heimamönnum í undankeppni HM.
FRÉTTIR07.11.2025, 11:02
Þjálfarinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við HK. Fótbolti.net greindi frá því fyrir viku síðan að það stefndi í að Gunnar Heiðar yrði ráðinn til félagsins.
Gunnar Heiðar kemur til félagsins eftir að hafa stýrt Njarðvík í tvö og hálft tímabil. Hann tekur við starfinu af Hermanni Hreiðarssyni sem var ráðinn til Vals á dögunum.
Aðstoðarþjálfarinn Arnar Freyr Smárason og styrktarþjálfarinn Sigurður Már Birnisson fylgja Gunnari Heiðari frá Njarðvík.
FRÉTTIR07.11.2025, 09:46
Sóknarmaðurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks.
Berglind kom til Breiðabliks fyrir síðasta tímabil og átti frábæra endurkomu í grænu treyjunni. Liðið landaði báðum stóru titlunum og Berglind var markahæsti leikmaður Íslandsmótsins með 23 mörk.
Markafjöldi Berglindar gerði það að verkum, að hún er nú orðin markahæsti leikmaðurinn í sögu kvennaliðs Breiðabliks, með 202 mörk.
„Við vonumst eftir enn fleiri mörkum frá Berglindi á komandi ári. Til hamingju með samninginn, Berglind Björg," segir í yfirlýsingu Breiðabliks.
FRÉTTIR06.11.2025, 21:11
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og Enes Cogic, aðstoðarþjálfari liðsins, hafa skrifað undir nýjan samning sem gildir út tímabilið 2028.
Magnús er Aftureldingarmaður í húð og hár en hann spilaði upp yngri flokkana með liðinu og var í sex ár í meistaraflokki.
FRÉTTIR06.11.2025, 16:09
Daniel De Rossi er tekinn við Genoa en íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson leikur fyrir félagið. Genoa er þriðja liðið sem De Rossi stýrir eftir að hann lagði leikmannaskóna á hilluna.
Hann stýrði SPAL í B-deildinni og svo Roma í A-deildinni en þar er hann algjör goðsögn eftir leikmannaferilinn. Hann var frábær miðjumaður og var í heimsmeistaraliði Ítalíu 2006.
FRÉTTIR06.11.2025, 15:47

Ajax hefur rekið þjálfarann John Heitinga. Tap liðsins gegn Galatasary í Meistaradeildinni í gær virðist hafa gert útslagið en félagið tilkynnti brottreksturinn fyrir skömmu.

Heitinga tók við liðinu í upphafi sumars. Þar áður var hann aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool og var í teyminu þegar Liverpool vann ensku deildina á síðasta tímabili.

FRÉTTIR06.11.2025, 14:50
ÍA tilkynnti í dag um breytingar á leikmannahópi félagsins. Fimm leikmenn félagsins kveðja. Það eru þeir Arnleifur Hjörleifsson, Árni Salvar Heimisson, Guðfinnur Þór Leósson, Hlynur Sævar Jónsson og Kristófer Áki Hlinason.
Hlynur Sævar er 26 ára varnarmaður sem kom við sögu í 21 deildarleik með ÍA á tímabilinu. Hann var samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Guðfinnur er 26 ára miðjumaður sem kom við sögu í níu deildarleikjum með ÍA á tímabilinu. Samningur hans gildir til 16. nóvember.
Arnleifur er 25 ára vinstri bakvörður sem lék á láni hjá Njarðvík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Hann var samningsbundinn út næsta tímabil. Árni Salvar er 22 ára hægri bakvörður sem lék á láni með Grindavík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Samningur hans gildir til 16. nóvember.
Í lok síðasta mánaðar tilkynnti Víkingur Ólafsvík að Kristófer Áki yrði áfram hjá félaginu en hann var þar á láni frá ÍA. Hann er 21 árs vinstri bakvörður.