Manchester United leiðir 2-1 í hörkuleik gegn Aston Villa þessa stundina eftir að Bruno Fernandes skoraði úr vítaspyrnu.
Fernandes skoraði af punktinum eftir að brotið var á Paul Pogba innan vítateigs en dómurinn er afar umdeildur.
Michael Oliver dæmdi vítaspyrnu og var atvikið skoðað gaumgæfilega í VAR herberginu. Ákveðið var að breyta ekki upprunalegum dómi Oliver þar sem ekki um augljós mistök var að ræða.
Douglas Luiz reyndist brotlegur. Hann snerti fótinn á Pogba sem varð til þess að franski landsliðsmaðurinn felldi sjálfan sig innan teigs.
Atvikið má sjá með að smella hér.
Athugasemdir