14.09.26 - 08:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Meira en bara markamet hjá KR

KR-ingar hafa fagnað 79 mörkum í deildinni í ár og þau gætu orðið 90.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar slógu markamet efstu deildar karla í gær, eins og sagt var frá hér á Fótbolti.net, þegar þeir unnu Skagamenn 5-1 í 23. umferð Bestu deildar karla á Meistaravöllum.
Þeir eiga enn eftir að leika fjóra leiki í deildinni í haust en hafa þegar skorað 79 mörk í 23 leikjum, þremur meira en Víkingar gerðu í 27 leikjum árið 2023.
KR hefur skorað 3,4 mörk að meðaltali í leik og það er nákvæmlega sama hlutfall og var hjá einu besta liði Íslandssögunnar, liði Skagamanna árið 1993, en það skoraði 62 mörk í 18 leikjum, sem líka gerði 3,4 mörk að meðaltali í leik.
Skagamenn 1993 eru í tíunda sæti yfir markahæstu lið sögunnar í deildinni og það þrátt fyrir að liðið hafi aðeins spilað 18 leiki á meðan hin liðin á topp-tíu listanum eru með frá 22 til 27 leiki.
En það eru ekki bara mörkin sem KR-ingar skora sjálfir sem hafa slegið öll met því þeir hafa líka fengið á sig 50 mörk og tímabil Vesturbæinganna á báðum endum vallarins er þegar orðið einstakt í fótboltasögunni.