Fotbolti.net
13.09.26 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu

Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu
Canon

Mynd: EPA

Ensku dómarasamtökin hafa viðurkennt að dómarateymið hafi gert mistök þegar sigurmark Erling Haaland fékk að standa í leik Man City gegn Man Utd á Old Trafford í dag.

Haaland skoraði eftir fyrirgjöf frá Josko Gvardiol. VAR skoðaði atvikið þar sem Haaland var mögulega í rangstöðu en það kom á daginn að svo var ekki.
Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái
TENGT EFNI

Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái

Enzo Fernandez var hins vegar í rangstöðu og reyndi við boltann áður en hann barst til Haaland. Lisandro Martínez var að verjast Enzo og skildi Haaland eftir óvaldaðan.

„Í sömu sókn kom í ljós að Enzo Fernandez spilaði ekki boltanum og því er rangstaða huglæg. Í þetta skiptið gerði VAR sér hins vegar ekki grein fyrir líklegum áhrifum staðsetningar hans og hefði átt að mæla með endurskoðun innan vallar," segir í yfirlýsingu frá dómarasamtökunum.

„Haft hefur verið samband við Manchester United í kvöld til að viðurkenna það sem við teljum vera mistök í mati. Farið verður yfir atvikið.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.