14.09.26 - 07:40
Elvar Geir Magnússon
Bayern fylgist grannt með Wirtz - Slær Liverpool met til að fá Rayan?

Florian Wirtz aftur til Þýskalands?

Mynd: EPA

Opnar Liverpool veskið fyrir Rayan?

Mynd: EPA

Jadon Sancho.

Mynd: EPA

Florian Wirtz aftur til Þýskalands?

Mynd: EPA

Þjóðverji út og Brasilíumaður inn hjá Liverpool? Hér er samantekt á helsta slúðrinu sem er í gangi á miðlunum þennan mánudagsmorguninn.
Bayern München fylgist grannt með stöðu þýska miðjumannsins Florian Wirtz (23) hjá Liverpool. Wirtz hefur fengið talsverða gagnrýni á tíma sínum í Bítlaborginni. (Teamtalk)
Liverpool gæti slegið félagsmet sitt til að fá brasilíska sóknarmanninn Rayan (20) frá Bournemouth næsta sumar, kjósi félagið að virkja riftunarákvæði upp á 130 milljónir punda sem tekur gildi á næsta ári. (Football Insider)
Liverpool á möguleika á að breyta lánssamningi úrúgvæska varnarmannsins Ronald Araujo (27) í varanleg kaup frá Barcelona fyrir 47 milljónir punda. (Fabrizio Romano)
Juventus er ekki reiðubúið að selja Pierre Kalulu í janúarglugganum (26) en bæði Manchester United og Liverpool hafa verið orðuð við möguleg kaup á þessum 26 ára gamla franska varnarmanni. (Manchester Evening News)
Niko Kovac, þjálfari Borussia Dortmund, hefur útilokað möguleikann á að fá Jadon Sancho (26) aftur til félagsins. Þessi fyrrum kantmaður Manchester United er án félags. (Mirror)
Umboðsmaður Sancho hefur átt í viðræðum við ýmis félög í ensku úrvalsdeildinni um möguleg félagaskipti. (Football Insider)
Borussia Dortmund hefur, líkt og Manchester United, sýnt Louis Page (18) miðjumanni Leicester City áhuga. Þýska félagið hefur sent njósnara til að fylgjast með Englendingnum unga. (Teamtalk)
Celtic og félög í Championship-deildinni hafa augastað á enska unglingalandsliðsmanninum Luke Chambers (22), varnarmanni Liverpool, fyrir janúargluggann. (Football Insider)
Piero Ausilio (54), fyrrum yfirmaður íþróttamála hjá Inter, er á leiðinni til Tottenham, en félagið hefur boðið Ítalanum starf frá og með janúarglugganum. (Gazzetta)