Fotbolti.net
13.09.26 - 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Þrjú rauð spjöld þegar Fylkir tryggði sér sæti í úrslitum

Fylkir er komið í úrslit

Fylkir er komið í úrslit

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fylkir 2 - 2 HK (5 - 4 samanlagt)
1-0 Theodór Ingi Óskarsson ('37 )
1-1 Birgir Steinn Styrmisson ('54 )
1-2 Dominik Radic ('65 )
2-2 Guðmundur Tyrfingsson ('105 )
Rautt spjald: Dominik Radic, HK ('105)Aron Snær Guðbjörnsson, Fylkir ('121)Aron Kristófer Lárusson, HK ('122) Lestu um leikinn
Það gekk mikið á þegar Fylkir tryggði sér sæti í úrslitaleiknum um sæti í Bestu deildinni.

Fylkir vann fyrri leikinn 3-2. HK byrjaði af krafti í kvöld, Dominic Radic komst í færi strax á fyrstu mínútu en Ólafur Kristófer Helgason sá við honum.

Karl Ágúst Karlsson komst síðan í færi eftir rúmlega hálftíma leik en skaut yfir. Strax í kjölfarið náði Fylkir forystunni. Theodór Ingi Óskarsson átti skot sem var varið út í teiginn, Magnús Daði Ottesen átti síðan skalla í slá og boltinn barst aftur til Theodórs sem skoraði.

Birgir Steinn Styrmisson jafnaði metin fyrir HK snemma í seinni hálfleik með skallamarki eftir sendingu frá Ívari Erni Jónssyni. Radic kom síiðan HK yfir og jafnaði metin í einvíginu eftir hornspyrnu frá Ívari Erni.

Máni Austmann Hilmarsson hefði getað tryggt Fylki sigurinn í blálokin en skaut framhjá. Það var því framlengt.

Það ætlaði allt um koll að keyra undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar. Guðmundur Tyrfingsson skoraði fyrir Fylki og Radic taldi að Aron Snær Guðbjörnsson hafi brotið á sér í aðdragandanum. Radic gaf Aroni olnbogaskot og fékk rautt spjald að launum.

Báðir bekkirnir trylltust og það fór spjald á loft á bekkinn hjá HK.

Eyþór Aron Wöhler fékk tækifæri til að innsigla sigur Fylkis undir lokin en Ólafur varði vel frá honum. Stuttu síðar fékk Aron Snær Guðbjörnsson sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Rauða spjaldið fór síðan á loft í þriðja sinn í blálokin þegar Aron Kristófer Lárusson braut á Tuma Fannari Gunnarssyni.

Það var það síðasta sem gerðist og Fylkir vann því einvígið og mætir Þrótti í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni á Laugardalsvelli þann 19. september.
Guðmundur Tyrfingsson

Guðmundur Tyrfingsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.