Fékk rautt spjald gegn HK: Fyrra gula var frekar heimskulegt


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður helvíti vel en þetta var svekkjandi í lokin, þarf víst að sitja upp í stúkunni" sagði Aron Snær Guðbjörnsson, leikmaður Fylkis eftir að Fylkir komst í úrslit Lengjudeildarumspilsins.
Hvað gerðist þegar þú fékkst rautt spjald?
„Ég er að hlaupa til baka og fæ hann á blindu hliðina og hleyp hann niður, skiljanlega rautt."
„Fyrra gula var frekar heimskulegt, hann er að drulla yfir Gumma sem liggur niðri á jörðinni ég ætla eitthvern veginn að bakka hann upp, en já bara heimskulegt."
Hvernig var frammistaðan?
„Það er bullandi barátta og við vinnum þetta á viljanum."
„Þeir eru með sterkt lið og eru sterkir í loftinu. Við einhvern veginn slökum samt aldrei á og höldum alltaf áfram."
„HK er með drullu gott lið, líkamlega sterkir, bara hrós til þeirra."
