Gunnar Heiðar ósáttur út í dómgæsluna: Að hann fái rautt, ég næ því ekki enn þá


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta eru tvö góð lið að mætast og allt það, en mér fannst við vera betri í þessum leik,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir 2–2 leik gegn Fylki á útivelli.
HK þurfti að vinna leikinn eftir 2–3 tap í fyrri leiknum og er því úr leik í umspilinu eftir samanlagt 4–5 tap gegn Fylki.
„Mér fannst við vera með control á þessu, mér fannst þeir eiga erfitt með spilið okkar, færslur á okkur og fleira. Sem að sést, ég held að tölfræðin verður fín okkur í hag eftir leik, en það sem skiptir mestu máli er að klára þessa leiki. Því miður þá fáum við fyrsta markið á okkur sem er frekar aulalegt og kjánalegt hjá okkur. Við gefumst ekki upp og höldum áfram og við skorum tvö frábær mörk, erum með mómentið með okkur."
„Svo er það önnur pása, aðstoðardómari sem drepur svo niður tempóið þegar við vorum með mómentið með okkur að ná í þetta þriðja mark og fjórða mark. Gæti ekki verið meira stoltari af strákunum mínum, þeir gáfu allt í þetta."
„Það eru einhverjir sem missa hausinn í lokin, en ég held að það sé mannlegt eðli þegar þú ert búin að leggja svo mikið í þetta og það er einhver sem segir það að þú fáir ekki allt sem þú vilt með og þá verðurðu orðinn pirraður. Þegar það er búið að vera í svolítinn langan tíma þá snapparu á eitthverjum tímapunkti og ég held að það gerðist í lokin,"
Ef dómaraskiptingin hefði ekki gerst, hefði HK þá náð þriðja markinu?
„Hundrað prósent, við voru með tvö góð mörk á stuttum tíma. Við vorum á þeim."
Dominik Radic fékk rautt spjald á 105. mínútu.
„Í þessu mómenti þá kemur langur bolti og hann er bara tekinn niður, það sést alveg augljóslega og það er helvíti erfitt að ná honum niður, hann er ekki að láta sig detta ég get lofað þér því. Einhvern veginn eru aðilar þarna sem voru í kringum þetta sem dæma leikinn, þeir sjá þetta ekki. Þá kemur eitthvað rót á okkur út af því að menn héldu það eins og það er búið að vera allan leikinn, þá í stöðu til þess að komast í sóknarshape en það verður til þess að við opnum okkur aðeins og þeir fá þetta mark."
HK fékk annað rautt spjald á 122. mínútu.
„Bara pirringur hérna í lokin, ég veit samt ekki með Dominik (Radic) að hann fái rautt, ég næ því ekki en þá. Ég sá ekki neitt, þeir segja við mig að hann hafi sparkað eftir einhverjum, það getur vel verið. Ég sá ekki neitt, ég sá ekki allt sem þeir sáu og þeir sjá greinilega ekki allt sem ég sá líka."
„Hann (dómarinn) kom með þessa útskýringu á þessu mómenti."
HKingar vildu víti á 112. mínútu en fengu ekki.
„Jói tekur boltann með sér og kemst inn, þá kemur hérna vinstri bakvörðurinn hjá þeim og fer bara í hann. Ef hann hefði ekki farið í hann þá hefði hann komst einn í gegn og komið á markið. En hann dettur við það að það sá farið í hann, en það er ekki dæmt."
Finnst þér dómarinn setja sitt mark á leikinn?
„Ég held að það sé augljóst."
Það varð svo allt vitlaust í framlengingunni en þá skoraði Guðmundur Tyrfingsson jöfnunarmarkið en í aðdragandanum braut Dominik Radic af sér og fékk rautt spjald að lokum frá Gunnari Frey, dómara leiksins. pic.twitter.com/FjHJUptxtS
— Livey (@liveysport) September 13, 2026
