14.09.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Þreytumerki á Liverpool - „Verð að læra inn á leikmenn“

Iraola spjallar við leikmenn sína.

Mynd: EPA

Giorgi Mamardashvili mun verja mark Liverpool gegn Tottenham á morgun.

Mynd: EPA

Iraola spjallar við leikmenn sína.

Mynd: EPA
Liverpool gerði markalaust jafntefli gegn Fulham á laugardag og hefur mistekist að sigra í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Eftir flottan leik gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í miðri viku var frammistaða Liverpool um helgina flöt og kraftlítil. Það voru þreytumerki á Liverpool-liðinu og það skorti sköpunarmátt.
Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segist þurfa að læra inn á leikmenn sína.

TENGT EFNI
Í fyrsta sinn í fimm ár hjá Liverpool
„Það eru leikmenn sem spila án vandræða á þrigga daga fresti, svo eru aðrir sem eiga erfiðara með það og frammistaðan er ólík. Ég þarf að læra inn á hvaða menn eru tilbúnir að spila á þriggja daga fresti og hverjir þurfa hvíld til að álagið hafi ekki áhrif á frammistöðuna," segir Iraola.
„Ég taldi þetta vera nokkuð ljóst í mínum huga hvað varðar suma leikmenn en varðandi aðra þá er þetta nýtt, jafnvel fyrir þá sjálfa, því þeir hafa ekki spilað svona marga leiki áður. Við erum að læra."
Alexander Isak, Bradley Barcola og Florian Wirtz voru fremstu menn Liverpool en náðu ekki nægilega vel saman. Það þarf að þróa samvinnu þeirra betur.
Liverpool á leik gegn Tottenham í deildabikarnum á morgun en leikurinn fer fram á Anfield. Á fréttamannafundi staðfesti Iraola að Joe Gomez væri klár í slaginn og sagði að hann myndi gefa mönnum tækifæri í leiknum. Þá greindi hann frá því að það yrðu gerð markvarðarskipti og Giorgi Mamardashvili myndi spila leikinn.