14.09.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Óskar spurður út í Sowe orðróminn - „Áhugaverður leikmaður“

Omar Sowe, sóknarmaður ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe, sóknarmaður ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Omar Sowe hjá ÍBV hefur verið sterklega orðaður við KR en um miðjan júlí sagði Fótbolti.net frá því að Óskar Hrafn Þorvaldsson hefði áhuga á að fá hann í Vesturbæinn.
Óskar þekkir Sowe vel en sóknarmaðurinn var hjá Breiðabliki þegar hann hélt um stjórnartaumana þar.

TENGT EFNI
KR hefur áhuga á Omar Sowe
Samningur Sowe við ÍBV rennur út í nóvember og er honum frjálst að ræða við önnur félög. Sögur segja að hann gæti farið í KR eftir tímabilið.
Óskar Hrafn var spurður út í þessa orðróma í samtali við Vísi.
„Það er ekkert klárt í því. Hann er áhugaverður leikmaður en er samningsbundinn ÍBV og ég get ekki tjáð mig um leikmenn sem eru samningsbundnir öðrum liðum,“ sagði Óskar Hrafn.
Sowe hefur nokkuð verið á meiðslalistanum í sumar en hefur komið við sögu í þrettán leikjum og skorað fimm mörk.
Óskar Hrafn er duglegur að vinna í leikmannamálum og hefur KR verið sterklega orðað við Örn Braga Hinriksson, ungan sóknarmann Þróttar, en sagan segir að hann fari í Vesturbæinn eftir tímabilið. Þá hefur Emil Atlason, sóknarmaður Stjörnunnar, einnig verið orðaður við KR.

Heimild: Vísir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð