Fotbolti.net
14.09.26 - 08:28
Elvar Geir Magnússon

Rangers fór illa með Celtic - Tómas Bent mætir Aberdeen í undanúrslitum

Derek McInnes tók við Rangers eftir að hafa náð góðum árangri með Hearts.

Derek McInnes tók við Rangers eftir að hafa náð góðum árangri með Hearts.

Canon

Mynd: EPA

8-liða úrslit skoska deildabikarsins voru leikin um helgina. Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var með stoðsendingu í 3-0 sigri Hearts gegn C-deildarliðinu Stenhousemuir á föstudagskvöld.

Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir á Hampden Park, þjóðarleikvangi Skota, í lok októbermánaðar. Hearts mun mæta Aberdeen sem vann Kilmarnock eftir vítakeppni á laugardaginn.
Tómas Bent og Helgi Fróði lögðu upp
TENGT EFNI

Tómas Bent og Helgi Fróði lögðu upp

Old Firm slagurinn fór fram í gær og þar vann Rangers afskaplega sannfærandi 3-0 sigur gegn erkifjendunum í Celtic. Fyrirliðinn Dan Neil fór mikinn og skoraði tvö mörk.

Rangers er heldur betur farið að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun á tímabilinu undir stjórn Derek McInnes. Rangers mun mæta Hibernian í undanúrslitum deildabikarsins.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.