Fotbolti.net
02.03.20 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Gomes birtir dramatískt myndband af endurhæfingunni

Andre Gomes er mættur aftur á völlinn

Andre Gomes er mættur aftur á völlinn

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes sneri aftur á völlinn með Everton gegn Arsenal í lok febrúar eftir að hafa ökklabrotnað gegn Tottenham í nóvember en hann birti í kvöld myndband af endurhæfingunni.
Útlitið á ökklabroti Gomes gegn Tottenham var hræðilegt en það var búist við því að hann yrði frá út tímabilið.

Endurhæfing Gomes gekk hins vegar afar vel og tókst honum að jafna sig á 112 dögum.

Hann mætti aftur á völlinn í 3-2 tapi gegn Arsenal þann 23. febrúar og hefur hann nú birt dramatískt myndband þar sem hann þakkar stuðninginn.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.