Fotbolti.net
16.09.26 - 12:34
Kári Snorrason

Boltastrákurinn sem Hazard sparkaði í selur vodkaveldið á 50 milljarða

Náðu sáttum.

Náðu sáttum.

Canon

Mynd: Instagram

Charlie Morgan, boltastrákurinn sem Eden Hazard sparkaði í í leik Chelsea og Swansea árið 2013, hefur selt vodkaveldi sitt Au Vodka fyrir um 300 milljónir punda, eða tæpa 50 milljarða króna.

Morgan var 17 ára þegar atvikið vakti heimsathygli. Hann hélt boltanum þegar Chelsea var í leit að jöfnunarmarki, við litla hrifningu Hazard sem sparkaði í hann.

Hazard fékk í kjölfarið að líta rauða spjaldið og var dæmdur í þriggja leikja bann út af atvikinu.

Morgan er orðinn 31 árs og stofnaði Au Vodka upp ásamt vini sínum sem er nú eitt þekktasta vodkamerki heims. Hazard og Morgan hafa náð sáttum og lék Belginn í auglýsingu fyrir merkið fyrir nokkrum árum.
Hazard hitti boltastrákinn sem hann sparkaði í fyrir 11 árum síðan
TENGT EFNI

Hazard hitti boltastrákinn sem hann sparkaði í fyrir 11 árum síðan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.