Fotbolti.net
16.09.26 - 22:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sögulegt tap hjá Man Utd

Sögulegt tap hjá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Man Utd er úr leik í enska deildabikarnum eftir 3-2 tap gegn Brighton í kvöld.

Man Utd náði tveggja marka forystu en missti hana niður og Maxim De Cuyper tryggði Brighton sigurinn.
Þetta var sögulegt tap hjá Man Utd. Þetta var í fyrsta sinn í 50 ár sem liðið missir niður tveggja marka forystu á Old Trafford. Stuðningsmenn Man Utd voru eðlilega ekki sáttir í lokin og bauluðu á liðið.

„Ég skil tilfinningar stuðningsmanna fullkomlega. Við verðum að sætta okkur við það. Þetta er á mér að lokum, hvernig við spilum og úrslitin. Ége mun taka hrósi og tek gagnrýni," sagði Michael Carrick eftir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.