Fotbolti.net
17.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Guðjón Árni ráðinn þjálfari Keflavíkur (Staðfest)

Guðjón Árni ráðinn þjálfari Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Keflavík

Kvennaboltinn
Guðjón Árni Antoníusson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Hann tekur við af Vedran Medenjak sem yfirgaf félagið í síðasta mánuði.

Guðjón Árni þekkir mjög vel til hjá félaginu en hann var leikmaður þar um árabil, var fyrirliði og varð bikarmeistari í tvígang með félaginu.
Þá hefur hann veriið þjálfari 2. flokks félagsins undanfarin ár ásamt Einari Orra Einarssyni.

„Hann þekkir því vel til starfsins innan félagsins og þeirra leikmanna sem eru að stíga sín fyrstu skref upp í meistaraflokk. Knattspyrnudeild Keflavíkur býður Guðjón Árna velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins," segir í tilkynningu frá Keflavík.

Keflavík hafnaði í 8. sæti Lengjudeildar kvenna í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.