17.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jonathan Glenn hættur hjá Selfossi (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss

Jonathan Glenn hefur sagt af sér sem þjálfari kvennaliðs Selfoss. Félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum.
Glenn tók við liðinu fyrir nýliðið tímabil og stýrði Selfossi í 5. sæti Lengjudeildarinnar sem nýliði.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun, en fjarlægðin og ferðalögin sem starfinu fylgja hafa gert mér erfitt fyrir að samræma fótboltann og fjölskyldulífið. Vonin var sú að við gætum fundið lausn sem gerði mér og fjölskyldu minni kleift að flytja nær, en því miður varð það ekki að veruleika,” sagði Glenn.
„Ég er ótrúlega þakklátur fyrir tækifærið, fólkið sem ég hef unnið með og allt sem við áorkuðum saman á tímabilinu. Það hafa verið mikil forréttindi að fá að leiða þennan hóp og ég óska Selfossi alls hins besta í framtíðinni."
„Knattspyrnudeild Selfoss þakkar Glenn fyrir framlag sitt til deildarinnar og liðsins síðasta árið, fagmennsku og metnað í starfi sem aðalþjálfari kvennaliðsins. Gangi þér vel Glenn," segir í tilkynningu frá félaginu.