Fotbolti.net
17.09.26 - 08:20
Fótbolti.net
Gatorade bikar Fótbolti.net

Upphitanir stuðningsmanna Selfoss og Hauka

Miðasala á leikinn í fullum gangi

Upphitanir stuðningsmanna Selfoss og Hauka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net, bikarkeppni neðri deilda, klukkan 19 á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.

Það má búast við mjög góðri stemningu enda hafa stuðningsmenn beggja liða ástæðu til að fagna góðu sumri. Þetta eru tvö efstu lið 2. deildar, Haukar unnu deildina og Selfoss tók annað sætið og bæði leika því í Lengjudeildinni á næsta ári.

Miðasala á leikinn er hafin á miðasöluvef KSÍ - Miðaverð á leikinn er 2.500 krónur og 500 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Báðir úrslitaleikirnir í Laugardalnum sýndir beint á Livey
TENGT EFNI

Báðir úrslitaleikirnir í Laugardalnum sýndir beint á Livey

Selfyssingar ætla að hita upp fyrir leikinn á Risinu á Selfossi og opnar húsið klukkan 16:00. Magnús Kjartan mætir með gítarinn og tilboð verða á mat og drykk. Gummi Tyrfings býður stuðningsfólki að koma í rútu á völlinn.

Upphitun stuðningsmanna Hauka fyrir leikinn verður á Ölveri þar sem gleðistund verður í gangi og grillið opið. Upphitun hefst 16:30.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.