17.09.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Gæsaveiðimaðurinn dæmir úrslitaleik Selfoss og Hauka

Sveinn Arnarsson greip gæsina.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net, bikarkeppni neðri deilda, klukkan 19 á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.
Það má búast við mjög góðri stemningu enda hafa stuðningsmenn beggja liða ástæðu til að fagna góðu sumri. Þetta eru tvö efstu lið 2. deildar, Haukar unnu deildina og Selfoss tók annað sætið og bæði leika því í Lengjudeildinni á næsta ári.

TENGT EFNI
Dómarinn á gæsaveiðum í miðjum leik á Dalvík
Búið er að opinbera dómarateymi leiksins en það verður Sveinn Arnarsson sem verður aðaldómari. Sveinn dæmdi nýlega sinn fyrsta leik í Bestu deildinni og þá komst hann í fréttirnar eftir að hafa gripið gæsina á Dalvík á dögunum.
Jovan Subic og Arnþór Helgi Gíslason verða aðstoðardómarar, Elías Ingi Árnason verður fjórði dómari, Halldór Breiðfjörð Jóhannsson verður eftirlitsmaður KSÍ og Valur Páll Eiríksson eftirlitsmaður Fótbolta.net.