Fotbolti.net
16.09.26 - 11:19
Kári Snorrason

Þrjú lið í Bestu á eftir Eysteini

Á að baki 5 landsleiki fyrir U19 liðið.

Á að baki 5 landsleiki fyrir U19 liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Valur, Fram og ÍBV eru öll á höttunum eftir Esteyni Rúnarssyni, ungum varnarmanni Grindavíkur, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Talið er líklegt að hann yfirgefi Grindavík eftir að liðið féll niður úr Lengjudeildinni. Samningur hans við félagið rennur út eftir rúmt ár.
Fram reyndi að fá þriðja Rúnarssoninn
TENGT EFNI

Fram reyndi að fá þriðja Rúnarssoninn

Eysteinn er fæddur árið 2008 og spilaði hann 19 leiki í Lengjudeildinni í sumar. Hann á að baki fimm leiki með U19 landsliðinu og spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki 2024.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bauð Fram í leikmanninn undir lok sumargluggans en tilboði þeirra var hafnað.

Hjá Fram eru eldri bræður Eysteins. Sigurjón er leikmaður meistaraflokks karla og Anton Ingi er þjálfari kvennaliðsins.
Sigurjón Rúnarsson er bróðir Eysteins.

Sigurjón Rúnarsson er bróðir Eysteins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.