Fotbolti.net
16.09.26 - 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópudeildin: Sögulegur sigur hjá Sunderland

Benfica lagði AC Milan

Evrópudeildin: Sögulegur sigur hjá Sunderland
Canon

Mynd: EPA

Níu leikir fóru fram í fyrstu umferð deildarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Sunderland fékk AZ Alkmaar í heimsókn en þetta var fyrsti Evrópuleikur Sunderland í 53 ár.

Heimamenn voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og óðu í færum en staðan var enn markalaus eftir 45 mínútur.
Sunderland fékk vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik þegar brotið var á Enzo Le Fee í teignum. Hann steig sjálfur á punktinn og skoraði.

Robin Roefs kom í veg fyrir að AZ jafnaði metin undir lokin en hann varði í þrígang og Sunderland fór með sigur af hólmi.

AC Milan, undir stjórn Ruben Amorim, fékk Benfica í heimsókn. Dodi Lukebakio kom Benfica yfir með góðu skoti fyrir utan teiginn. Jakub Kaminski innsiglaði sigurinn með viðstöðulausu skoti úr teignum eftir fyrirgjöf frá Souffian El Karouani.

Facundo Medina innsiglaði sigur Leverkusen gegn Celje með marki eftir hornspyrnu. Þá hafði Lyon betur gegn Anderlecht.

Úrslit og markaskorarar kvöldsins

Ararat-Armenia 1 - 4 Sparta Prag
0-1 Tobias Guddal ('20 )
0-2 Tobias Guddal ('22 )
0-3 John Mercado ('53 )
1-3 Bruno Wilson ('55 )
1-4 Patrik Vydra ('71 )

Omonia 1 - 0 Celta Vigo
1-0 Jure Balkovec ('88 )

AC Milan 0 - 2 Benfica
0-1 Dodi Lukebakio ('16 )
0-2 Jakub Kaminski ('53 )

Bayer Leverkusen 2 - 0 Celje
0-1 Svit Seslar ('15 , sjálfsmark)
1-1 Facundo Medina ('74 )

Hapoel Beer Sheva 0 - 0 Dinamo Zagreb

Olympiakos 2 - 1 Jagiellonia
0-1 Kajetan Szmyt ('20 )
1-1 Armando Gonzalez ('43 )
2-1 Roman Yaremchuk ('84 )

Anderlecht 1 - 2 Lyon
0-1 Noah Nartey ('8 )
0-2 Keito Nakamura ('22 )
1-2 Mihajlo Cvetkovic ('61 )

Sturm 0 - 0 Rennes

Sunderland 1 - 0 AZ Alkmaar
1-0 Enzo Le Fee ('66 , víti)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.