Fotbolti.net
04.12.12 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Domino\'s-lið vikunnar í enska

Daniel Agger er í úrvalsliðinu að þessu sinni.

Daniel Agger er í úrvalsliðinu að þessu sinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Síðast leituðum við í smiðju Goal.com en nú er aftur komið að Garth Crooks hjá BBC að velja úrvalslið umfarðarinnar.


Markvörður - Brad Guzan, Aston Villa
Kom í veg fyrir að Harry Redknapp og félagar næðu í þrjú stig.

Hægri bakvörður - Matthew Lowton, Aston Villa
Hefur átt fleiri tæklingar á þessu tímabili en nokkur annar leikmaður Villa.

Miðvörður - Ashley Williams, Swansea
Michu fékk fyrirsagnirnar en fyrirliðinn Williams átti einnig stóran þátt í sigrinum gegn Arsenal.

Miðvörður - Daniel Agger, Liverpool
Flottur skalli hans tryggði Liverpool sigur.

Vinstri bakvörður - Jose Enrique, Liverpool
Hefur verið mjög skapandi fyrir liðsfélaga sína það sem af er tímabili.

Miðjumaður - Marouane Fellaini, Everton
Besti maður vallarins í jafntefli gegn Manchester City.

Miðjumaður - Juan Mata, Chelsea
Kemst í liðið þrátt fyrir tap gegn West Ham. Samherjar hans þurfa að stíga upp.

Miðjumaður - Shaun Wright-Phillips, QPR
Sýndi gamalkunn tilþrfi gegn Aston Villa.

Sóknarmaður - Wayne Rooney, Man Utd
Vinnusamur liðsmaður. Hefur lagt upp fleiri mörk í deildinni en nokkur annar.

Sóknarmaður - Michu, Swansea
Kostaði aðeins 2 milljónir punda en er að borga það margfalt til baka.

Sóknarmaður - Jermain Defoe, Tottenham
Hefur þakkað Andre Villas-Boas traustið með reglulegri markaskorun.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.