Hallast örlítið í átt að Víkingi fyrir leik kvöldsins


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:00 taka Íslandsmeistararnir í Víkingi á móti ungversku meisturunum í Györ í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni. Seinni leikurinn fer svo fram í Györ eftir viku.
Víkingur var í efri styrkleikaflokki þegar dregið var og fékk sterkasta liðið úr neðri styrkleikaflokknum í drættinum.
Víkingur var í efri styrkleikaflokki þegar dregið var og fékk sterkasta liðið úr neðri styrkleikaflokknum í drættinum.

TENGT EFNI
Besti mögulegi tíminn fyrir Víkinga
Það er búist við jöfnu einvígi og jöfnum leik í kvöld. Epicbet er á því að Víkingur sé örlítið líklegri aðilinn í kvöld til að ná í sigur en stuðullinn á því er 2,48. Stuðullinn á jafntefli er 3,45 og stuðullinn á sigri ungverska liðsins er 2,58. Fyrirfram eru líklegustu úrslitin 1-1, en stuðullinn á þeim lokatölum er 7,5.
Elías Már Ómarsson er talinn líklegasti markaskorari Víkings í leiknum og Tarik Ibrahimagic líklegastur til þess að fá spjald.
Elías Már Ómarsson er talinn líklegasti markaskorari Víkings í leiknum og Tarik Ibrahimagic líklegastur til þess að fá spjald.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð







