Króatar senda kvörtun til FIFA - „Misnota tæknina“

Mynd: EPA

Gvardiol fagnar markinu sem var síðar dæmt ógilt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Króatíska fótboltasambandið hefur sent kvörtun til alþjóðafótboltasambandsins, FIFA, vegna marksins sem var dæmt af liðinu gegn Portúgal í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

TENGT EFNI
Hvað gerðist í nótt? - Örflagan sem bjargaði Ronaldo og félögum
Jöfnunarmark Króata var tekið af á lokasekúndum uppbótartímans gegn Portúgal, en Josko Gvardiol hafði komið boltanum í netið.
Ástæðan var sú að boltinn snerti hár Igor Matanovic áður en hann fór áfram á Marko Pasalic, sem var í rangstöðu.
Sérstakur skynjari er í HM-boltanum og hann greindi snertinguna, þó hún hafi verið afar lítil. Króatar eru mjög ósáttir við að markið hafi verið dæmt af og telja að þarna hafi tæknin verið misnotuð.
„Króatíska fótboltasambandið sendi bréf til Gianni Infantino, forseta FIFA, þar sem sambandið lýsti yfir vonbrigðum sínum og óánægju með leikinn gegn Portúgal. Ekki aðeins vegna dómar ákvarðana, enda er hægt að ræða slíkar ákvarðanir eftir alla leiki, heldur vegna ferlisins sem leiddi til þeirra.“
„Til að byrja með teljum við að VAR hafi verið ranglega notað í vítaspyrnunni sem Portúgal fékk og að dómarinn hefði ekki átt að vera kallaður að skjánum til að skoða atvikið aftur.“
„Þá viljum við sérstaklega ræða jöfnunarmark Gvardiol, sem var dæmt af gegn reglum og anda fótboltans. Pasalic var vissulega rangstæður, en Matanovic lék ekki boltanum, þó skynjarinn hafi sýnt fram á snertingu.“
„Við teljum að þarna hafi tæknin, sem við fögnum í fótboltanum, verið misnotuð. Þessi beiting hennar er hvorki FIFA, liðunum né stuðningsmönnum til góðs.“
„Við vitum að bréfið mun ekki draga úr sársauka eða vonbrigðum stuðningsmanna og leikmanna, en við teljum mikilvægt að vara FIFA við og fara fram á ítarlega útskýringu á öllum þessum ákvörðunum,“ sagði talsmaður króatíska fótboltasambandsins.